Forvarnir gegn gróðureldum

Almennar upplýsingar um námið

Haldið í samstarfi Brunavarna Árnessýslu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarinnar og Verkís.

Námskeiðið er öllum opið, hentar sérstaklega bændum, skógareigendum og öðrum sem eiga land sem eldur getur brunnið á og ógnað verðmætum.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða lög og reglugerðir gilda um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum. Kynnt verður vefsíðan www.gróðureldar.is. Skipulag skóga og ræktaðra svæða með tilliti til brunavarna. Varnarsvæði – hvers konar gróður er á slíkum svæðum. Fjallað verður um mikilvægi vega og slóða á ræktuðum svæðum og gott aðgengi að vatni.

Er trjágróður miseldfimur? Hvað töpum við miklu kolefni ef hann brennur? Er hægt að tryggja tré/skóg? Sagt verður frá þeim búnaði og aðferðum sem nýtast við að ráða niðurlögum gróðurelda. Næsta slökkvilið, hvaða búnað hefur það til umráða? Eru öll slökkvilið eins útbúin? Hver eru fyrstu viðbrögð við gróðureldum, hvað þarf að vera til staðar í sumarhúsinu/á svæðinu? Skiptir máli hvernig gróður er næst mannvirkjum?

Kennsla: Dóra Hjálmarsdóttir Verkís, Björn B Jónsson / Björn Traustason Skógræktinni, Pétur Pétursson og Haukur Grönli Brunavörnum Árnessýslu og Björgvin Örn Eggertsson LbhÍ.

Tími: Vor 2022, kl. 13:30-17:00 (5 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.

Verð:  (Kaffi og gögn innifalin í verði).

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.