Æðarrækt og æðardúnn

Almennar upplýsingar um námið

NÁMSKEIÐIÐ FELLUR NIÐUR VEGNA ÓNÓGRAR ÞÁTTTÖKU  

-Í samstarfi við Æðarræktarfélag Íslands –

Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um æðarrækt, m.a. þeim mörgu sem hafa hugleitt það að hefja æðarrækt.

Farið er yfir lifnaðarhætti, eiginleika og sérstöðu æðarfuglsins, hvernig eigi að koma upp varpi og ferilinn frá dúntekju til sölu dúnsins. Þær óskir og kröfur sem neytandinn gerir til æðardúns og hvernig þörfum er fullnægt. Litið á þær kröfur sem gerðar eru til gæðamats á æðardúni og þann lagaramma sem viðkomandi búgrein býr við. 

 

Tími: Námskeið fellur niður vegna ónógrar þátttöku. Laugardaginn 18. mars kl. 10-14:30

Staður: Hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík. 
Einnig er hægt að taka þátt í námskeiðinu á Teams og fá þátttakendur sendan hlekk í tölvupósti föstudaginn 17. mars.

Kennsla: Ýmsir sérfræðingar, sjá dagskrá hér fyrir neðan

Verð: 26.000 kr.

Félagsfólk í Æðarræktarfélagi Íslands fær 25% afslátt af námskeiðsgjaldi.

Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Dagskrá

10:00                 SetningBjargey Anna Guðbrandsdóttir endurmenntunarstjóri LBHÍ

10:10-11:00        Æðarfugl, lifnaðarhættir, líffræði og varpstöðvar  –  Jón Einar Jónsson forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á                                   Snæfellsnesi

11:00-11:40        Æðardúnn, eiginleikar, meðferð og hreinsun  – Erla Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Íslensk æðardúns ehf.

11:40-12:00        Lög um gæðamat á æðardúni og hlutverk æðardúnsmatsmanna  – Guðrún Gauksdóttir lögmaður

12:00-12:45       Hádegishlé

12:45-13:20        Útflutningur æðardúns og óskir kaupenda  – Erla Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Íslensk æðardúns ehf.

13:20-14:30        Að hefja æðarræktMargrét Rögnvaldsdóttir æðarbóndi

    Umræður og dagskrárlok   

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.