Ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna

– Réttindanám – 

Umsókn

– Opið fyrir umsóknir til 31. október –

Haldið af Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitið.
Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum samkvæmt reglugerð.

Réttindanám fyrir ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara og útrýmingarefna er einkum ætlað þeim sem starfs síns vegna þurfa að vera með réttindi á þessu sviði. 

Námið er kennt í fjarkennslu og hefst formlega þriðjudaginn 5. nóvember og lýkur með rafrænu prófi
þriðjudaginn 19. nóvember. Upptökur af öllum fyrirlestrum, glærur og annað lesefni er aðgengilegt á kennsluvef skólans frá og með 5. nóv. og geta nemendur nálgast námsefnið allan sólarhringinn fram að prófdegi.

Í náminu er fjallað um helstu plöntuverndarvörur og útrýmingarefni, notkun þeirra og varnir. Fjallað er um vinuvernd og viðbrögð við eitrunum á menn og umhverfi og hvernig hægt er að lágmarka áhættu við meðferð þeirra. Einnig er fjallað um um helstu skaðvalda á Íslandi, notendaleyfi og meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna, vinnuvernd, áhættumat fyrir vinnustaði og margt fleira.

Fjöldi sérfræðinga kemur að kennslu námskeiðsins.

Verð: 65.000 kr. 

Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.

– Við minnum á að hægt er að sækja um styrk frá stéttarfélögum til að sækja námskeið eða nám – 

Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og skilmála

Ábyrgðarmenn í meðferð varnarefna

Námið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara og útrýmingarefna.

Fjallað verður um helstu plöntuverndarvörur og útrýmingarefna, notkun þeirra og varnir. Þá verður fjallað um vinnuvernd og viðbrögð við eitrunum bæði á menn og umhverfi og komið inn á hvernig hægt er að lágmarka áhættu við meðferð þeirra og fjallað um helsta varnarbúnað.

Námið er metið til 2 framhaldsskólaeininga (fein). 

Námsmat: Námsmatið fer fram rafrænt þriðjudaginn 19. nóvember og er prófið aðgengileg á kennsluvef skólans frá kl. 9 til miðnættis.

Prófið er með 20 fjölvalsspurningum (krossaspurningum) og gefnar 30 mínútur til að svara prófinu.

Um leið og þú opnar prófið  færðu 30 mínútur til að svara. Þú velur hvenær þú tekur prófið og hefur þannig fulla stjórn á því hvaða tíma dagsins hentar þér að taka prófin.

Vinsamlega athugaðu að próftími gefur lítið eða ekkert svigrúm til að leita svara í fyrirliggjandi námsefni og mikilvægt að mæta vel undirbúinn til prófs. Nokkuð er um það að nemendur þurfi að taka endurtektarpróf, og sýnir reynslan okkur að það er fyrst og fremst vegna lítils undirbúnings nemenda.

Námskröfur: Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Mikilvægt er að hafa í huga að vera vel undirbúinn fyrir prófið þar sem námsefnið er yfirgripsmikið og ríkar kröfur gerðar til nemenda. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um leyfi sem ábyrgðarmaður í markaðssetningu  plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Sækja þarf um réttindi til Umhverfisstofnunar að námi loknu, sjá nánar hér

Kennarar: Fjölmargir sérfræðingar kenna á námskeiðinu og eru þeir allir sérfræðingar á sínu sviði. Sjá nánar í stundaskrá sem send er á nemendur.

Kennsla: Námið er  í fjarkennslu og verða upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar á kennsluvef skólans fram yfir prófdag. Námið telst vera 15 kennslustundir og verður dagskrá námsins raðað niður samkvæmt ákveðnu skipulagi á námsvefnum.

Kennsluvefur: Kennsluvefur skólans heitir Ugla. Kennsluskrifstofa Landbúnaðarháskóla Íslands veitir nemendum aðgang að kennsluvef skólans og er aðgangurinn opinn fram á prófdag. Við hvetjum nemendur til að kynna sér kennsluvefinn strax og hvernig námið er skipulagt, tímaröð fyrirlestra, lesefni og hagnýtar upplýsingar sem þar er að finna. Borið hefur á því að nemendur ætla sér að fara inn á kennsluvefinn rétt fyrir próf og hafa lent í vandræðum með innskráningu og hefur opnunartími kennsluskrifstofu áhrif á hversu fljótt nemendur komast inn á kennsluvefinn. Netfang kennsluskrifstofu er: kennsluskrifstofa@lbhi.is.

Einnig er hægt að hringja í síma 433 5000 og óska eftir sambandi við kennsluskrifstofu. Opnunartími kennsluskrifstofu er:
– Mánudaga til miðvikudaga: 8.00 – 16.00
– Fimmtudaga og föstudaga: 8.00 – 13.00

Skrifstofa Endurmenntunar LBHÍ: Hægt er að hafa samband við Áshildi Bragadóttur endurmenntunarstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið ashildur@lbhi.is. Ef erindið er brýnt og þolir ekki bið er hægt að hringja í Áshildi í síma 782 1202.

Verð: 65.000 kr.

Hagnýtar upplýsingarVið vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Endurmenntun LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri – 311 Borgarbyggð

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590