Grjóthleðslunámskeið við Fossárrétt í Hvalfirði

– Einungis 8 sæti í boði á hvort námskeið –

Fullt á bæði námskeið, 
hægt að skrá sig á biðlista

 – Í samstarfi við Kjósarhrepp og undir leiðsögn Minjastofnunar Íslands – 

Á þessu verklega námskeiði verður unnið að endurreisn Fossárréttar hinnar yngri, gammallar fjárréttar við Fossá í Hvalfirði. Þátttakendur fá leiðsögn í undirstöðuatriðum grjóthleðslu og kynnast um leið mikilvægi þessa forna handverks í íslenskum byggingariðnaði. 

Grjóthleðsla er ein elsta byggingaraðferð Íslendinga og hefur verið stunduð hér á landi í yfir þúsund ár. Hún er hluti af ríkri verkmenningu sem mótast hefur af náttúrulegum skilyrðum, fábreyttum byggingarefnum og þörfinni fyrir að nýta tiltæk efni á hagkvæman og endingargóðan hátt. Í gegnum aldirnar voru hlaðnir veggir, réttir, torfbæir, garðar og landamerki  – mannvirki sem krefjast nákvæmni, þolinmæði og skilnings á lögun , þyngd og jafnvægi steina.

Með námskeiðinu er leitast við að miðla verkþekkingu sem er mikilvægur hluti af sögu Íslands og menningararfi þjóðarinnar. Námskeiðið veitir þátttakendum einstakt tækifæri til að læra af reyndum hleðslumeistara og taka þátt í varðveislu lifandi byggingararfs.  

EFNISTÖK
Námskeiðið er að mestu verklegt. Þátttakendur læra réttu handtökin með því að vinna við að endurhlaða grjót á gamalli fjárrétt. Fjallað er um: 

  • Íslenskan byggingararf og sögu grjóthleðslu
  • Helstu undirstöðuatriði grjóthleðslu
  • Val, lögun og staðsetningu steina
  • Jafnvægi, styrk og frágang hleðslna
  • Varðveislu gamalla mannvirkja og mikilvægi handverksþekkingar.

Gert er ráð fyrir góðu samtali á námskeiðinu og þátttakendur fá tækifæri til að spyrja spurninga, ræða aðferðir og áskoranir.

FYRIR HVERJA
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á að kynnast grjóthleðslu, læra um þennan íslenska byggingararf og verklega varðveislu menningarminja. 

KENNARI
Kennari er Unnsteinn Elíasson frá Ferjubakka, einn fremsti hleðslumeistari landsins. 

TVÆR DAGSETNINGAR Í BOÐI

  • 20. – 21. júní 2026
    kl. 10-17 báða daga.
  • 11. – 12. júlí 2026
    kl. 10-17 báða daga

KENNSLUFYRIRKOMULAG

Námskeiðið fer fram við Fossá í Hvalfirði, við hina fornu lögrétt Kjósverja. Nánari staðsetning og upplýsingar verða sendar þátttakendum fyrir námskeið.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð báða dagana.

VERÐ
70.000. kr.

Aðeins 8 sæti eru í boði á hvorunámskeiði. 


Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.

– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið – 

Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.

Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590

Hvanneyri – 311 Borgarbyggð

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590