Æðarrækt og dúnmat

– Í samstarfi við Æðarræktarfélag Íslands og Atvinnuvegaráðuneytið –

Við bjóðum upp á námskeið um æðarrækt og dúnmat sem ætlað er dúnmatsmönnum, æðarræktendum og öllu áhugafólki um æðarrækt og æðardún. Námskeiðið hentar jafnt þeim sem þegar stunda æðarrækt sem og þeim sem hafa áhuga á að hefja ræktun og kynna sér þessa einstöku búgrein nánar.

Á námskeiðinu verður fjallað um lifnaðarhætti, varpstöðvar og sérstöðu æðarfuglsins hér á landi. Farið verður yfir hvernig best er að koma upp varpi, ferlið frá dúntekju til sölu dúnsins og þær kröfur sem gerðar eru til æðardúns á mörkuðum erlendis. Einnig verður fjallað um óskir og væntingar neytenda, gæðamat á æðardúni og þann lagaramma sem æðarrækt og dúnvinnsla býr við.

Dúnmatsmaður mun kynna gæði og mat á æðardúni og sýna dæmi um æðardún af ólíkum gæðum þar sem þátttakendur fá að beita sjónmati, sneringu og lyktarskyni við mat á dúni af mismunandi gæðum.

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Laugardaginn 21. mars kl. 10:00–16:00

STAÐUR
Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík, Árleynir 22, 112 R.

Einnig er boðið upp á þátttöku í gegnum Teams, en aðeins fyrir þau sem eru ekki að endurnýja réttindi í dúnmati eða sækja um dúnmatsréttindi. Mæting í verklega hlutann er skilyrði fyrir alla sem vilja starfa við dúnmat.

Þátttakendur sem velja Teams fjarnámskeið fá sendan hlekk í tölvupósti 2 dögum áður en námskeiðið hefst.

KENNARAR
Ýmsir sérfræðingar á sviði æðarræktar og dúnmats (sjá dagskrá hér að neðan).

VERÐ
39.000 kr.
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru fyrirlestrar, léttur hádegisverður og kaffiveitingar.

Dagskrá

10:00-11:00      Æðarfugl, lifnaðarhættir, líffræði og varpstöðvar  –  Jón Einar Jónsson forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi
11:00-11:30       Lög um gæðamat á æðardúni og hlutverk æðardúnsmatsmanna  – Guðrún Gauksdóttir lögmaður og fyrrverandi formaður ÆÍ
11:30-12:10       Æðardúnn, eiginleikar, meðferð og hreinsun  – Erla Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Íslensk æðardúns ehf.
12:10-13:00      Hádegishlé – Léttur hádegisverður fyrir þau sem mæta
13:00-13:40      Útflutningur æðardúns og óskir kaupenda  – (ekki staðfest)
13.40-14:10      Yfirferð á stöðlum – Erla Friðriksdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Íslensk æðardúns ehf.
14:10-15:30      Gæði dúns og mat á æðardúniBjörgvin Björgvinsson æðarbóndi og dúnmatsmaður 
15:30-16:00     Kaffi og dagskrárlok

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590