Almennar upplýsingar um námið
Með hækkandi sól verða fingurnir grænni og þá ber að huga að pottaplöntum heimilisins sem hafa legið í dvala yfir vetrartímann.
Námkeiðið Í pottinn búið er opið öllum og hentar vel þeim sem vilja auka þekkingu sína á pottaplöntum, umhirðu þeirra og umhverfiskröfum.
Á námskeiðinu verður fjallað um algengar tegundir pottaplantna, fjölgun þeirra og umhirðu, m.a. vökvun, áburðargjöf og jarðveg, sem og staðsetningu þeirra innanhúss og hvaða áhrif þær hafa á umhverfi okkar.
Hluti af námskeiðinu er verklegur og munu þátttakendur læra að taka afleggjara af plöntum, skipta pottaplöntum og umpottun.
Þátttakendur munu fara með hluta af plöntunum heim eftir námskeiðið.
Hámarksfjöldi þátttakenda eru 20 manns.
Kennarar: Frændsystkinin Hafsteinn Hafliðason sérfræðingur og Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hjá LbhÍ.
Tími: Lau. 19. mars kl. 9 – 15
Staður: Hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi
Verð: 36.000 kr. (Námskeiðsgögn, kaffi og hádegsmatur innifalið auk þess sem þátttakendur taka með sér plöntur heim af námskeiðinu)
Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590