Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hefur haldið námskeið um sveppi og sveppatínslu um árabil og hafa námskeiðin alltaf verið vel sótt, enda gaman og gefandi að fara út í náttúruna og draga björg í bú.
Námskeiðið um sveppi og sveppatínslu er fræðandi og hagnýtt tveggja daga námskeið og kennari er Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur og áhugamaður um sveppi og nýtingu þeirra. Helena hefur haldið fjölda námskeiða um sveppi og sveppatínslu.
Námskeiðið byrjar seinnipart dags föstudaginn 29. ágúst með fyrirlestri og sýningu á helstu ætisveppategundum sem við gætum átt von á að finna í sveppagöngu. Þar er fólki kennt að þekkja um 20 tegundir öruggra ætisveppa og fjallað er um útbreiðslu þeirra, búsvæði og önnur einkenni. Helstu eitruðu sveppategundum sem hægt er að rugla saman við þessa ætisveppi verða einnig gerð skil.
Á laugardeginum 30. ágúst verður síðan farið í ólík skóglendi með kennara og aðstoðarfólki þar sem veitt er leiðsögn við greiningar á þeim sveppategundum sem finnast, á hvaða þroskastigi þær eru nýtanlegar og hvernig er best að ganga frá þeim.
Að því loknu er farið í eldhús Landbúnaðarháskóla Íslands að Keldnaholti þar sem sveppirnir sem þátttakendur hafa tínt eru hreinsaðir undir handleiðslu og þeim kennt hvernig er best að haga geymslu sveppanna svo að þeir njóti sín sem best í matargerð. Að lokum eru nokkrar valdar sveppategundir steiktar í smjöri og olíu og fá allir að prófa að bragða á þeim með góðu brauði.
Boðið er upp á léttar kaffiveitingar á föstudeginum og þegar komið er í hús eftir skógarferðina á laugardeginum. Mælt er með því að þátttakendur taki með sér nesti fyrir hádegismat á laugardeginum.
Við minnum þátttakendur á að klæða sig eftir veðri og allir þurfa að hafa með sérstakan sveppahníf eða vasahníf til að hreinsa sveppina og körfu eða kassa undir sveppina svo það loft vel um þá (alls ekki plastpoka).
Ath. aðeins 15 pláss laus.
– Uppselt hefur verið á síðustu námskeið –
Kennari: Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur
Tími: Fös. 29. ágúst kl. 15-18 og lau. 30. ágúst kl. 10-16 (9 klst.)
Staður: Í og við Keldnaholt og í nærliggjandi skóglendi (nánari staðsetningar þegar nær dregur námskeiði).
Verð: 39.900 kr. Innifalið í verði er kennsla og handleiðsla aðstoðarmanneskju auk kaffiveitinga
Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.
– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið –
Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.
Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590