Almennar upplýsingar um námið
Námskeiðið er ætlað hestamönnum á öllum stigum hestamennskunnar, allt frá byrjendum til keppnisknapa. Nemendur fá innsýn í það hvernig hugaþjálfun hjálpar knapanum við að ná stjórn á sjálfum sér til þess að geta haft góð samskipti við hest sinn. Efnið er allt frá því að setja sér markmið í reiðmennsku og þjálfun, vinna á hræðslu eða stressi yfir í að ná því besta úr sjálfum sér í krefjandi aðstæðum, til dæmis í keppni.
Námskeiðið fer fram í fjarkennsluforritinu TEAMS, sem er einfalt og notendavænt kerfi. Þátttakendur námskeiðsins sjá kennarann og glærur auk annarra þátttakenda. Þátttakendur geta einnig spurt spurninga og tekið þátt í umræðum og spjalli undir stjórn kennarans.
Athugið að námskeiðið fer einungis fram í rauntíma.
Það eina sem þú þarft að gera er að hafa til taks tölvu, spjaldtölvu eða síma og hljóðnema. Flestar tölvur eru með vefmyndavél og viljum við biðja þig um að hafa kveikt á henni til að við sjáum hvert annað, þannig skapast skemmtilegri stemning og samræður verða líflegri.
Gott er að vera komin inn á fundinn 2-3 mín áður en námskeiðið byrjar til að við getum byrjað á réttum tíma.
Við mælum með því að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Við sendum hlekk námskeiðsins deginum áður en það hefst á það netfang sem þú gefur upp við skráningu. Þú færð einnig sendar góðar leiðbeiningar um þátttöku í gegnum TEAMS. Þú þarft síðan eingöngu að smella á hlekkinn til að fara inn á námskeiðið og því ekki nauðsynlegt að hlaða TEAMS forritinu niður.
Kennsla: Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Tími:
Verð:
Inngangur
- Hver er ég
- Hvernig hestamaður vilt þú vera? (Gildi)
Hugur og líkamstjáning
- Samskipti við hestinn
- Hugarfar stjórnar útkomu
- Líkamstjáning og ábendingar
Stjórn á aðstæðum
- Búa til „rétta stemningu“
- Hugarástandsstjórn (trigger)
Hræðsla
- Hvað er hræðsla?
- Að vinna á hræðslu
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590