GPS-námskeið fyrir útivistina

Almennar upplýsingar um námið

Haldið í samstarfi við Ferðafélag Íslands   

GPS námskeiðið er almennt námskeið fyrir byrjendur og þá sem vilja rifja upp í notkun á staðsetningartækjum. 

Kennd verður almenn grunnnotkun á GPS-handtækjum, meðal annars stillingar tækisins, hvað beri að varast, töku vegpunkta, gerð leiða og ferla. Þá verður farið í grunnatriði á Wickilocks og Garmin forritunum sem getur nýst vel til útivistar. 

Á námskeiðinu munu þátttakendur æfa sig í að finna punkta og setja inn í tækin og merkja út á korti. Þátttakendur  eru beðnir um að hafa með sér eigin GPS tæki enda best að læra á tæki sem viðkomandi ætlar að nota og nýta. Í lok námskeiðs eru útiverkefni sem þátttakendur leysa í sameiningu. 

Námskeiðið miðast við þjálfa þátttakendur í notkun GPS-tækja til almennrar útivistar, til dæmis í gönguferðir, utanvegahlaup, jeppaferðir og vélsleðaferðir.  

Námskeiðið er tveir eftirmiðdagar, þriðjudagurinn 06. apríl frá kl. 18-21 og fimmtudagurinn 08. apríl frá kl. 18-21. Seinni daginn er útiverkefni og þátttakendur hvattir til að klæða sig eftir veðri. 

Kennari á námskeiðinu er Hjalti Björnsson sem hefur starfað sem leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands um árabil.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 10. 

Kennari: Hjalti Björnsson leiðsögumaður og kennari

Tími: Þri., 06. apríl kl. 18-21 og fim. 08. apríl kl. 18-21 

Staðsetning: LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík og útivistarparadísin við Reynisvatn og Úlfarsfell 

Verð: 17.000 (Kennsla og kaffi er innifalið í verði námskeiðs) 

Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám 

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.