Umsókn með hundi
fim. 26. feb. og fös. 27. feb. (10 pláss)
– 2 sæti laus –
Umsókn með hundi
lau. 28. feb. og sun. 1. mars (10 pláss)
– FULLT – biðlisti –
Umsókn án hunds
fim. 26. feb. og fös. 27. feb (5 pláss)
– 2 sæti laus –
Umsókn án hunds
lau. 28. feb. og sun. 1. mars (5 pláss)
– FULLT – biðlisti –
Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa fólk fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Markmið þessa námskeiðs, sem haldið er af Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Smalahundafélag Íslands (SFÍ), er að kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Stærstur hluti námskeiðsins er verkleg þjálfun með hundi sem fer fram í reiðhöll. Bókleg kennsla er einnig til staðar eftir sem þörf er á. Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð.
Þetta námskeið hentar mjög vel fyrir þau sem hafa lokið grunnnámskeiði í þjálfun Border Collie vinnuhunda á vegum Smalahundafélags Íslands og Endurmenntunar LbhÍ og þeim sem eru með hunda sem eru byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frum-skipunum en einnig þeim sem eru að taka sín fyrstu skref.
Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi.
TVÖ NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Fimmtudaginn 26. feb. og föstudaginn 27. feb. kl. 9-17 (með eða án hunds)
Laugardaginn 28. feb. og sunnudaginn 1. mars. kl. 9-17 (með eða án hunds)
Skráningarfrestur á námskeiðin: kl. 16:00 mánudaginn 23. febrúar 2026.
KENNSLUFYRIRKOMULAG
Um er að ræða námskeið sem haldin eru í glæsilegri hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði.
KENNARI
Kennari á námskeiðinu er Tim Thewissen.
Tim er upprunalega frá Belgíu og hóf störf við sauðfjárbúskap árið 2016 í suðurhluta Hollands. Þar voru smalahundar í fyrstu aðeins hliðarverkefni, en það breyttist árið 2018 þegar hann keypti Fellside Finn af Derek og Rachel Scrimgeour. Finn er enn í dag einn af helstu vinnu- og keppnishundum hans og sá hundur sem veitti honum innblástur til að byggja upp eigið teymi smalahunda.
Árið 2019 flutti Tim til Englands þar sem hann starfaði sem verktaki í smalamennsku og hafði umsjón með 2.500 ám á saltmýrum. Samhliða því þjálfaði hann og keppti með hunda, vann til meistaratitla í byrjendaflokki, náði verðlaunasætum í opnum flokki og tryggði sér sæti í úrslitum opins flokks. Frá 2020 til 2023 starfaði hann með Kevin Evans sem smalahundaþjálfari, þar sem hann aflaði sér dýrmætrar reynslu á sama tíma og hann hélt áfram að keppa með góðum árangri. Með Finn safnaði hann nær 300 stigum í opnum flokki og var tvisvar valinn í velska landsliðið, árið 2022 og aftur árið 2024.
Meðal helstu hápunkta á keppnisferli hans má nefna titlana Reserve Welsh National Brace Champion og International Reserve Brace Champion árið 2023 með hundana Shep og Kate. Hann sigraði einnig hollensku opnu keppnina og Talgarreg Double Gather með Finn. Árið 2025 varð hann velskur landsmeistari í Brace-flokki með Kate og Fflandrys Cadi, og sama ár náði hann 6. sæti á Evrópumóti ungliða (Nursery Championship) með Oak Ben.
VERÐ
75.000 kr. með hundi – innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffiveitingar báða daga. Vinsamlegast athugaðu að innifalið í hverri skráningu er pláss fyrir einn þátttakanda með einn hund báða daga.
37.000 kr. án hunds – innifalið í verði er að fylgjast með kennslunni báða daga, hádegisverður og kaffiveitingar. Vinsamlegast athugaðu að innifalið í hverri skráningu er pláss fyrir einn þátttakanda án hunds báða daga.
Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði: 10 með hundi og 5 án hunds.
Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.
– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið –
Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590
