Almennar upplýsingar um námið
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vinna við hverskonar jarðrækt og vilja bæta
plægingartækni og skipulag plægingar.
Leiðir til betri plægingar eru skoðaðar. Farið er yfir helstu stillingar og stærðir varðandi plóg og dráttarvél, einnig eru byrjanir og uppmælingar fyrir teigplægingu teknar fyrir.
Kennsla er bókleg og lengd námskeiðs 3 klst.
Lágmarksfjöldi þátttakenda er 12 manns
Í samstarfi við búnaðarsambönd er hægt að óska eftir því að fá námskeiðið um allt land með því að hafa samband við okkur með tölvupósti á netfangið endurmenntun@lbhi.is eða hringja í síma 433 5000. Viljum við benda á að hægt er að halda námskeið í plægingum og námskeið í áburðardreifingu sama dag og nýta þannig sérfræðiþekkingu
Hauks Þórðarsonar til hins ítrasta.
Kennsla: Haukur Þórðarson leiðbeinandi við Landbúnaðarháskóla Íslands
Lengd námskeiðs: Hálfur dagur, 3 klst.
Verð: Ræðst af fjölda þátttakenda og verði haldið í lágmarki
Hagnýtar upplýsingar: Minnt er á Starfsmenntasjóð bænda sem vistaður er hjá Bændasamtökum Íslands (www.bondi.is)
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590