Almennar upplýsingar um námið
Áburðaráætlun er grunnurinn að góðri og nýtingu áburðarefna en til þess að hún nýtist sem best
þarf áburðurinn að lenda í réttu magni á réttum stað á túninu. Með jafnri dreifingu áburðar er hægt að tryggja hámarksnýtingu næringarefna, auka uppskeru og lágmarka umhverfisáhrif.
Til þess að svo megi verða er mikilvægt að huga að ýmsum þáttum varðandi dreifinguna sjálfa m.a. greiningu áburðar, gerð áburðaráætlana, stillingu áburðardreifara og dráttarvéla, notkun búnaðar til jaðardreifingar og nýtingu GPS búnaðar sem hjálpartækis.
Á námskeiðinu mun Haukur Þórðarson kennari á búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands fjalla um helstu atriði sem skipta máli til að hægt sé að ná betri árangri við dreifingu á tilbúnum áburði og þar með betri uppskeru.
Námskeiðið er ætlað öllum sem stunda jarðrækt og vilja nýta allan áburð sem best.
Í samstarfi við búnaðarsambönd er hægt að óska eftir því að fá námskeiðið um allt land með því að hafa samband við okkur með tölvupósti á netfangið endurmenntun@lbhi.is eða hringja í síma 433 5000. Viljum við benda á að hægt er að halda námskeið í plægingum og námskeið í áburðardreifingu saman og nýta þannig sérfræðiþekkingu
Hauks Þórðarsonar til hins ítrasta.
Kennari: Haukur Þórðarson kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands
Staður: Hjá Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri
Tími: Hálfur dagur, eða 3 klst.
Verð: 19.000 kr. – boðið er upp á kaffiveitingar meðan á námskeiði stendur
Athygli er vakin á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína
til að sækja nám og námskeið
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590