Undirbúningur lands til skógræktar

Umsókn

Undirbúningur lands – E.SK002

– Haldið í samstarfi við Land og skóg –

Á námskeiðinu verður fjallað um mismunandi landgerðir og  helstu eiginleika þeirra, svo sem  frjósemi, rakastig, tegundaval og  hvaða jarðvinnsluaðferðir sem henta í mismunandi landgerðir. Fjallað er um undirbúning lands til skógræktar með tilliti til ólíkra aðstæðna og hvaða möguleikar eru til staðar, hver er tilgangurinn, mögulegur ávinningur og kostir og gallar.

Kynntir verða mismunandi þættir í undirbúningi lands til skógræktar, s.s. uppgræðsla, hvenær þarf að græða upp, mismunandi uppgræðslu aðferðir og áburðargjöf.  Jarðvinnsla og mismunandi jarðvinnsluaðferðir eru kynntar,  farið ítarlega í hverja aðferð fyrir sig þar sem kostir og gallar eru metnir. Einnig er fjallað um slóðagerð, hvað þarf að hafa í huga við lagningu slóða og mismunandi aðferðir kynntar.

Farið er í vettvangsferð á jörð í nágrenninu þar sem hægt er að skoða að minnsta kosti tvær tegundir jarðvinnslu.  Því er mikilvægt að klæðast eftir veðri.

Kennari er Valdimar Reynisson skógfræðingur og fv. skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni. Valdimar er með langa reynslu í skógrækt, hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.

Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri og í nærliggjandi skógi

Tími: 09. mars kl. 10 – 16

Verð: 36.000 kr.  – Innifalið í verði er kennsla, léttur hádegisverður og kaffiveitingar

Athygli er vakin á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína
til að sækja nám og námskeið

Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og skilmála

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.