Á námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir við gerð landnýtingaráætlana og þeirra fjölmörgu atriða sem taka þarf tillit til s.s. minja og náttúruvernd, landslags, markmið skógræktar og loks skógræktarskilyrða.
Farið verður í heildarskipulagningu bújarða þar sem skóg- og skjólbeltarækt er hluti af landnýtingunni. Skoðaðir verða þættir eins og landlæsi, skógræktarskilyrði, umhverfisvernd, landslagsmótun með skógi,
val á trjátegundum miðað við aðstæður og markmið með skógræktinni.
Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og í lokin verklegri æfingu þar sem þátttakendur vinna með sína jörð og hefjast handa við gerð landnýtingaráætlunar.
Kennari er Valdimar Reynisson skógfræðingur. Valdimar er með langa reynslu í skógrækt, hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.
Tími: Lau. 3. maí kl. 10 – 16
Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri og nærliggjandi skóglendi
Verð: 39.000 kr. – Innifalið í verði er verkleg og bókleg kennsla, hádegisverður og kaffiveitingar
Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.
– Við vekjum athygli á að hægt er að sækja styrk hjá stéttarfélögum fyrir námskeiði eða námi –
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590