Umhirða ungskóga

– Mikilvægi og ávinningur umhirðu til að skógarauðlindin nái að dafna –

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fjallað er  um mikilvægi umhirðu ungskóga og ávinning umhirðunnar enda nauðsynlegt að vanda vel til verka við framkvæmdir og sinna skógum vel strax frá upphafi. Þannig nær skógarauðlindin að vaxa og dafna því í vel hirtum skógi standa heilbrigð tré.

Á námskeiðinu er meðal annars farið  yfir hvaða verk eru unnin  við umhirðu í ungskógi, svo sem tvítoppaklippingu, uppkvistun, snemmgrisjun, tiltekt og áburðargjöf og hvaða verkfæri þarf í einstök verk. Besti árstíminn til að vinna í skógi er á veturna þegar enn er kalt í veðri.

Í verklega hlutanum er farið nærliggjandi skóglendi þar sem skógrækt er skoðuð með tilliti til þeirra þátta sem snúa að umhirðu ungskóga. Mikilvægt er að vera með föt eftir veðri.

Námskeiðið hentar vel öllum skógareigendum og skógarverktökum og getur einnig nýst hverjum þeim sem hyggjast vinna með ungskóga svo sem starfsmenn sveitafélaga og meðlimi skógræktarfélaga.

Kennari er Valdimar Reynisson skógfræðingur. Valdimar er með langa reynslu í skógrækt, hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.

Tími: Lau. 10. maí kl. 10 – 16 

Staður: Hjá LBHÍ á Hvanneyri og nærliggjandi skóglendi

Verð: 39.000 kr. – Innifalið í verði er verkleg og bókleg kennsla, léttur hádegisverður og kaffiveitingar

Skráning á námskeið er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.

– Við vekjum athygli á að hægt er að sækja styrk hjá stéttarfélögum fyrir námskeiði eða námi –

Upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590