Almennar upplýsingar um námið
– Í samstarfi við Æðarræktarfélag Íslands –
Námskeiðið er ætlað bæði þeim sem stunda æðarrækt sem og öllu áhugafólki um æðarrækt.
Dúnnytjar eru alda gömul búgrein og hafa aðferðir og vinnubrögð þróast sem koma bóndanum og æðarfuglinum vel. Æðarfuglinn er villtur og nýtur góðs af afskiptum mannsins yfir varptímann. Þessar aðferðir byggja á verndun fuglsins og haga aðstæðum í varplandinu þannig að varp og dúnnýting aukist.
Á námskeiðinu verður farið yfir þróun æðarræktar á Íslandi, hvernig beri að hefja æðarrækt og að hverju þarf að huga. Fjallað verður um hvaða leiðir virka best við að verja varpið fyrir vargi og hvernig hægt er að stækka stofninn með ungauppeldi.
Félagsmenn í Æðarræktarfélagi Íslands fá 25% afslátt.
Tími: Laugardaginn 2. apríl kl. 10 – 13.30.
Staður: Hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík.
Einnig er hægt að taka þátt í námskeiðinu á Teams og fá þátttakendur senda hlekk í tölvupóst föstudaginn 1. apríl.
Verð: 24.000 kr.
Sjá dagskrá hér fyrir neðan.
DAGSKRÁ
10.00 – 10.30 Að hefja æðarrækt – Margrét Rögnvaldsdóttir æðarbóndi
10.30 – 11.15 Æðarfuglinn, ungauppeldi og leiðir til að verja varpið – Þorvaldur Þór Björnsson fv. æðarbóndi
11.15 – 11.40 Kaffihlé
11.40 – 12.20 Reynslan af ungauppeldi í Vattarnesi – Óðinn Logi Þórisson dúnmatsmaður og æðarbóndi með meiru
12.30 – 12.50 Nýting æðarvarps með sjálfbærni að leiðarljósi – Kristinn H. Skarphéðinsson dýravistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands
12.50 – 13.30 Fyrirspurnir og umræður
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590