Umsókn
Á námskeiðinu verður fjallað um eðli jarðar í jarðfræðilegu tilliti, byggingu hennar og samspil innrænna og útrænna afla. Innræn öfl: Bygging jarðar, jarðskorpuhreyfingar og flekakenningin, steindir, storkuberg, myndbreytt berg, hringrás bergs, jarðlagafræði, kvikumyndun í möttli, eldstöðvar og jarðskjálftar. Útræn öfl: Veðrun, upphleðsla setlaga, setberg, grunnvatn og stöðuvötn, skriðuhlaup, straumvatn, jöklar og jökulrof, landmótun, höf og sjávarrof.
Þátttakendur fá innsýn í jarðlagafræði og hvernig saga jarðar er lesin og læra að þekkja til stóru dráttanna í sögu jarðar. Fjallað verður um lögmál jarðlagafræði, jarðskorpuhreyfingar, ástæður þeirra og afleiðingar, bæði til skamms og langs tíma og orsakir, virkni og afleiðingar jarðskjálfta, ásamt dreifingu þeirra á jörðinni. Einnig verður gerð grein fyrir myndun bergs og mismunandi bergtegunda og hringrás bergs.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um ástæður, afleiðingar og mismunandi tegundir eldgosa, gosvirkni, dreifingu eldfjalla og gosefna, ásamt myndun kviku og áhrifa hennar á byggingu jarðar undir og ofan yfirborðs.Að nemendur þekki skriðuhlaup, ástæður þeirra, eðli og afleiðingar.
Þá verður fjallað um vatnsforða jarðar, gerð grein fyrir vatni sem auðlind og sjálfbæra nýtingu hennar, auk þess hvernig myndun og tæming grunvatns og stöðuvatna á sér stað, virkni straumvatna, rofmátt þeirra og setmyndun.
Virkni jökla og landmótun þeirra, setmyndun og rofmætti er einnig viðfangsefni námskeiðsins og munu þátttakendur öðlast skilning á jarðfræðilegum ferlum og samspili innrænna og útrænna afla.
Námskeiðið er kennt í fjarkennslu með 1 staðarlotu sem er 5. nóvember kl. 12.30-17. Stundaskrá má nálgast hér.
Nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LBHÍ sækja sama námskeið og nemendur sem skráðir eru í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands. Námskeiðið er á BS/BA stigi og metið til 6 ECTS eininga.
Nemendur vinna skýrslu sem gildir 30% af einkunn og taka rafrænt lokapróf sem gildir 70%.
Kennari er Brynhildur Magnúsdóttir jarðfræðingur og stundakennari hjá LBHÍ. Brynhildur kennir einnig náttúrufræði við Háskóla Íslands.
Staður: Allir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir nemendum á námsvef skólans.
Nemendum er í sjálfvald sett hvort þeir mæta í tíma eða hlusta á upptökur. Skyldumæting er í 1 dag.
Tími: 7 vikna námskeið frá 17. okt. – 30. nóv.
Verð: 44.000 kr.
– Við minnum á að hægt er að sækja um styrk frá stéttarfélögum til að sækja námskeið á háskólastigi –
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590