Umsókn
Til að hámarka afrakstur kúa reyna kúabændur að láta kýrnar bera einu sinni á ári.
Þetta þýðir að kýrnar þurfa að festa fang um það bil 85 dögum eftir burð.
Erfiðleikar við beiðslisgreiningu valda því að þetta markmið næst ekki alltaf.
Á námskeiðinu verður fjallað um frjósemi mjólkurkúa almennt og eðlilega hegðun kúnna þegar þær beiða.
Sagt verður frá aðferðum til þess að meta beiðslis og skýrt út hvernig hægt er að nota
upplýsingar úr huppa.is til að meta frjósemina á búinu.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að bæta það
sem betur getur farið í búrekstrinum sem snýr að því að koma kálfi í kýrnar.
Kennari: Þorsteinn Ólafsson dýralæknir
Hægt er að hafa samband við Endurmenntun LBHÍ með því að senda tölvupóst á netfangið endurmenntun@lbhi.is og óska eftir námskeiði sem haldið er í samstarfi við búnaðarsamböndin.
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590