Endurmenntun LbhÍ

Við Landbúnaðarháskóla Íslands er starfrækt öflug endurmenntun sem hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og býður upp á fjölbreytt námskeið um allt land.

Landbúnaðarháskólinn hefur sterk tengsl við atvinnulíf og landsbyggðina og þau tengsl eru mikilvægur grunnur að starfsemi Endurmenntunar LbhÍ. Þar er lögð áhersla á að bjóða nám og námskeið sem mæta þörfum fólks á vinnumarkaði og tengjast meðal annars landbúnaði, umhverfi, náttúru og öðrum fagsviðum skólans.

Mikil áhersla er lögð á vönduð námskeið og góða kennslu. Kennarar og fyrirlesarar koma bæði úr íslensku og erlendu fagumhverfi og eru sérfræðingar á sínu sviði. Einnig er lögð áhersla á gott samstarf við fagfélög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.

Endurmenntun LbhÍ býður bæði styttri námskeið og lengri námsleiðir sem henta vel fólki samhliða vinnu. Einnig eru ákveðnir áfangar úr staðnámi skólans opnir þeim sem vilja bæta við sig þekkingu eða einingum á ákveðnu sviði.

Fyrirtæki og stofnanir geta einnig óskað eftir sérsniðnu námi eða námskeiðum fyrir starfsfólk sitt.

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590