Umsókn með hundi
lau. 24. feb. og sun. 25. feb
– Fullt og biðlisti –
Umsókn með hundi
mán. 26. feb. og þri. 27. feb.
– Fullt og biðlisti –
Umsókn án hunds
lau. 24. feb. og sun. 25. feb.
– Fullt en hægt að skrá sig á biðlista –
Umsókn án hunds
mán. 26. feb.. og þri. 27. feb.
– Enn laus pláss –
– Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands –
Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.
Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
– Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
– Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 13 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 4-5 nemendur án hunds.
Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.
Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Jo Agnar Hansen kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.
Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.
Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!
Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi
Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði
Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Verð með hundi: 60.000 kr. – innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. – innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590