Grjóthleðsla

– Einungis 8 sæti í boði –

Grjóthleðsla er ein elsta byggingaraðferð Íslendinga og hefur verið stunduð í yfir þúsund ár. Hún er hluti af ríkri verkmenningu sem mótast hefur af skilyrðum náttúrunnar, fábreyttum efnum og þörf til að nýta þau á hagkvæman hátt. Í gegnum aldirnar voru reistir veggir, réttir, torfbæir og landamerki með hleðslu – handverk sem krefst nákvæmni, þolinmæði og skilnings á lögun og jafnvægi steina.

Þessi arfleifð er mikilvægur hluti af sögu landsins og menningarauði þjóðarinnar. Með námskeiðum sem þessum er leitast við að miðla þeirri dýrmætu þekkingu sem annars gæti glatast og efla meðvitund um mikilvægi varðveislu byggingararfs okkar.

EFNISTÖK

  • Námskeiðið verður að mestu verklegt þar sem leiðbeint verður um grjóthleðslu á gamalli fjárrétt.

  • Einnig verður farið yfir íslenskar grjót og torfarfleifðar.

  • Spjallað verður um þessa sér-íslensku byggingararfleifð og spurningum svarað frá nemendum. Gott tækifæri um gefast til að ræða málin. 

FYRIR HVERJA
Námskeiðið nýtist þeim sem hafa áhuga á að kynnast undirstöðuatriðum grjóthleðslu.

KENNARI
Einn fremsti hleðslumeistari landsins, Unnsteinn Elíasson, frá Ferjubakka, mun kenna á námskeiðinu. 

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Helgin 12. – 13. júlí, kl. 10-17 báða dagana.

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Um er að ræða námskeið sem haldið við hina fornu lögrétt Kjósverja við Fossá í Hvalfirði (nánari upplýsingar síðar). Boðið er upp á léttar kaffiveitingar og léttan hádegismat báða dagana.

VERÐ
64.000. kr.

Einungis 8 sæti verða í boði á þetta námskeið. 


Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.

– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið – 

Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.

Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590

Hvanneyri – 311 Borgarbyggð

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590