– Í samstarfi við Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda –
Haukur Þórðarson kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands verður með ráðgjöf og fræðslu um mikilvægi vandaðrar jarðvinnslu í landbúnaði, beitingu jarðvinnsluvéla, skynsemi við beitingu þeirra og stillingar og vinnu við jarðvinnslutækni í húsnæði Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda, Húnabraut 13, Blönduósi, þriðjudaginn 16. apríl frá kl. 13 til 17. Auk þess að fjalla um jarðvinnslu mun hann ræða um áburð, áburðardreifingu og nýtingu áburðar. Gefið verður gott svigrúm fyrir umræður og fyrirspurnir.
Kennari: Haukur Þórðarson leiðbeinandi við Landbúnaðarháskóla Íslands
Staður: Hjá Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda, Húnabraut 13, Blönduósi
Tími: Þri. 23. apríl kl. 11.30-19.30
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590