Járningar og hófhirða - framhaldsnámskeið

Á þessu hagnýta og fræðandi framhaldsnámskeiði í járningum og hófhirðu fá þátttakendur einstaklingsmiðaða kennslu í að járna hest auk þess sem þau vinna í hóp og læra af öðrum. Áhersla er lögð á að kenna nemendum góða líkamsstöðu við járningar og að beita járningarverkfærum af færni. Nemendur læra að járna út frá ganglagi og sköpulagi hestsins og farið er yfir helstu atriði varðandi mótun skeifna og notkun og vinnu við steðja.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og er bóklegi hlutinn í formi 2 klst. fyrirlesturs á Teams miðvikudaginn 18. mars kl. 17-19 og verklegi hlutinn fer fram í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands helgina 21. – 22. mars kl. 9-17.

FJALLAÐ ER UM
Í bóklega hlutanum er upprifjun á efni sem farið var yfir á byrjendanámskeiði í járningum og hófhirðu á vegum Endurmenntunar LbhÍ auk þess sem farið er dýpra í ýmsa þætti. Þannig er m.a. farið dýpra í:

  • Uppbyggingu neðri hluta fótar og hófs
  • Starfsemi hófsins og mikilvægi hófhirðu
  • Áhrif fótstöðu heilsu, endingu og ganglag hrossa

Í verklegum hluta námskeiðsins fá þátttakendur meðal annars  innsýn og þjálfun í:

  • Beitingu helstu verkfæra við hófhirðu og járningar
  • Mikilvægi réttrar líkamsstöðu járningamannsins
  • Helstu atriði varðandi mótun skeifna
  • Notkun og vinnu við steðja

FYRIR HVERJA
Námskeiðið hentar vel fyrir hestafólk sem vilja geta sinnt hófhirðu sjálf eða skilja betur hvernig hún hefur áhrif á velferð hestsins, starfsfólk í hestamiðstöðvum og búrekstri sem vill bæta við sig hagnýtri þekkingu sem nýtist í daglegri umhirðu hrossa og öllu áhugafólk um hesta sem vilja skilja betur hvernig góð hófhirða og rétt járning getur haft áhrif á ganglag, heilsu og vellíðan hestsins.

KENNARI
Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari og ráðunautur hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins. Sigurður Torfi hefur kennt járningar um árabil hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands.

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Helgina 21. – 22. mars í  hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði. Bókleg kennsla fer fram á Teams miðvikudaginn 18. mars frá kl. 17-19.

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Miðvikudaginn 18. mars kl. 17 verður Sigurður Torfi með fyrirlestur á Teams og fá nemendur sendan hlekk í tölvupósti eigi síðar en fimmtudaginn 12. mars, ásamt hagnýtum upplýsingum um námskeiðið. Verkleg kennsla er helgina 21. – 22. mars frá kl. 9-17 báða daga. Kennt er í 2 hópum, annar hópurinn mætir fyrir hádegi og hinn hópurinn eftir hádegi, báðir hópar fá saman kennslu í hádeginu, frá kl. 12.30 – 13.30, báða námskeiðsdagana.
Boðið er upp á léttan hádegismat á kaffistofu reiðhallarinnar og kaffi og meðlæti yfir daginn. Verklega kennslan er bæði einstaklingsmiðuð auk þess sem nemendur vinna saman og er leiðbeint í hóp.

Hámarksfjöldi er 16 manns.

VERÐ
50.000 kr. 

Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.

– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið – 

Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590