Keppnisnám Reiðmannsins | Endurmenntun

Keppnisnám Reiðmannsins

Umsókn

Keppnisnám í Reiðmanninum er nám á vegum Endurmenntunar LBHÍ fyrir alla sem vilja öðlast aukna færni í að undirbúa bæði sjálfan sig og hestinn fyrir þátttöku í keppnum. Námið er einstaklingsmiðað og hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppnisreiðmennsku sem og reynslumiklum keppendum sem vilja bæta árangur sinn í keppnum og þjálfa hestinn sinn í keppni.

Inntökuskilyrði

    • 18 ára aldurstakmark
    • Góð reynsla af hestamennsku
    • Ekki er skilyrði að hafa farið í gegnum nám í Reiðmanninum.
      Reynsla umsækjenda af hestamennsku/reiðmennsku er metin, fyrra námí reiðmennsku og hver hestakostur er.)

Markmið náms

Markmið námsins er að þátttakendur öðlist aukna færni í að undirbúa og þjálfa bæði sjálfan sig og hestinn fyrir þátttöku í keppnum og sýningum, sem og að öðlast færni í markvissri  markmiðasetningu við þjálfun keppnishesta með áherslu á þær æfingar sem hafa hvað mest nytsamlegt gildi fyrir keppnisþjálfun.

Áhersla er lögð á að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband til afkasta. Jafnframt er lögð áhersla á líkamsbeitingu, orkustig, söfnun, fjaðurmagn og rými hestsins. Á námskeiðinu öðlast þátttakendur einnig færni í að skynja andlegt jafnvægi, samstarfsvilja og einbeitingu hestsins við mikið þjálfunarálag.

Námið er einstaklingsmiðað og er kennsla miðuð út frá markmiðum og getu hvers og eins.

Um námið

Námskeiðið er kennt á fjórum verklegum helgum og fjórum eftirmiðdögum á tímabilinu janúar – apríl. Kennsla fer fram í einstaklings- og paratímum, einkakennslu í reiðhöll og úti á hringvelli eða skeiðbraut. Á eftirmiðdögum er kennt frá ca. kl. 15-20 og á laugardögum og sunnudögum frá ca. kl. 8-18.

Fyrstu helgina í náminu er gerð ítarleg úttekt á knapa og hesti. Eftir fyrstu helgi setur knapinn upp markmið annarinnar fyrir sig og hest sinn í samráði við reiðkennara.

Síðasta helgin í náminu er haldin í glæsilegri hestamiðstöð LbhÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði þar sem allir fjórir hóparnir koma saman og keppa á útivelli skólans. Á laugardeginum eru æfingar með reiðkennurum, pepp og fyrirlestur og á sunnudeginum er mót. 

Fyrirlestrar í boði

Í náminu er boðið upp á fyrirlestra á Teams með fremstu sérfræðingum á sínu sviði:

    • Fyrirlestur með íþróttadómara á vegum Hestadómarafélags Íslands (farið verður yfir löglegan búnað)
    • Fyrirlestur um fóðrun keppnishesta og hesta undir miklu álagi
    • Fyrirlestur með gæðingadómara á vegum Gæðingadómarafélags LH
    • Fyrirlestur með áherslu á  keppnisjárningar
    • Fyrirlestur um hugarfar og stemning á mótsdegi

Auk þess verður lesefni aðgengilegt á kennsluvefnum skólans um fóðrun, umhirðu og
undirbúning keppnishesta.

Námsmat og einingar

    • 6 einingar á framhaldsskólastigi (fein.)
    • Skilyrði að nemendur séu með 90% mætingu í verklega tíma
    • Nemendur verða að ljúka verkefnum til að fá námið metið til eininga

Verklegar helgar

Kennsla mun fara fram í einstaklings- og paratímum auk þess sem þátttakendur fá einkakennslu í reiðhöll og úti á hringvelli eða skeiðbraut. Í verklegum tímum er áhersla lögð á uppbyggingu og þjálfun knapa og hests fyrir keppni með einstaklingsmiðuðum áherslum. Farið verður í að setja upp prógramm sem hentar hverjum og einum, og er farið í yfirferðaþjálfun og skeiðþjálfun þar sem það á við.

Kostnaður og greiðslur

    • Heildarverð: 220.000 kr.
    • Staðfestingargjald: 100.000 kr. (óafturkræft) – dregst frá heildarverði
    • Eftirstöðvar: 120.000 kr. skipt  á tvo gjalddaga, 60.000 kr. 1. mars og 1. apríl

Athygli er vakin á því að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína sem sækja nám og námskeið. Hægt er að óska eftir því að greiða námskeiðsgjaldið að fullu hvenær sem er.

Nemandi sem hefur hafið nám í keppnisreiðmennsku ber að greiða námskeiðsgjaldið að fullu. 

KEPPNISNÁM REIÐMANNSINS ER Í BOÐI Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM – VOR 2026:

  • Hörður, Mosfellsbær – reiðkennari Ólafur Andri Guðmundsson:
    • Verklegar helgar:
      • 17. – 18. janúar
      • 21. – 22. febúar
      • 11. – 12. apríl
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Virkir dagar (föstudagar):
      • 30. janúar
      • 6. febrúar
      • 20. mars
      • 17. apríl
  • Sleipnir, Selfoss – reiðkennari Arnhildur Helgadóttir
    • Verklegar helgar:
      • 17. – 18. janúar
      • 28. feb. – 1. mars
      • 18. – 19. apríl
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Virkir dagar:
      • 30. janúar
      • 6. febrúar
      • 27. febrúar
      • 25. mars
  • Sóti, Álftanesi – reiðkennari Snorri Dal:
    • Verklegar helgar:
      • 17. – 18. janúar
      • 21. – 22. febúar
      • 11. – 12. apríl
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Virkir dagar (föstudagar):
      • 30. janúar
      • 6. febrúar
      • 20. mars
      • 17. apríl
  • Þytur, Hvammstanga – reiðkennari Þorsteinn Björnsson
    • Verklegar helgar:
      • 17.-18. janúar
      • 14. – 15. febrúar (óstaðfest)
      • 18. – 19. apríl
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Virkir dagar:
      • 30. janúar
      • 6. febrúar
      • 20. mars
      • 16. apríl

Innritun - Upphaf náms

Sótt er um námið á rafrænan hátt í gegnum heimasíðu LbhÍ. Óskað er sérstaklega eftir því að fólk tilgreini reynslu sína af hrossum, þátttöku í hrossatengdum námskeiðum og komi aðeins inn á hrossaeignina í athugasemdadálki í umsóknarferlinu.

Umsóknafrestur er til og með 1. desember. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Farið verður farið yfir umsóknirnar að umsóknarfresti loknum og ef þátttakandur uppfylla skilyrði og næg þátttaka er á hverjum stað (12-14 knapar) fá nemendur staðfestingu á netfang sem fylgdi umsókninni.  Skilyrði er að þátttakendur hafi góða  reynslu af hestamennsku og er m.a. tekið tillit til reynslu umsækjenda og hver hestakostur er. Einnig er tekið tillit til aldursdreifingar og kynjahlutfallss og tekið mið af því hvenær umsóknir berast.

Nánari upplýsingar um námið veitir Birna Tryggvadóttir Thorlacius verkefnisstjóri Reiðmannsins í síma 433 5000 og/eða með tölvupósti á netfangið birnat@lbhi.is.

Undirbúningskröfur

Nemendur þurfa að hafa áhuga á hestamennsku og eiga eða hafa góðan aðgang að hestum sem henta í námið.

Nemendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.

Góðrar reynslu í reiðmennsku og hestahaldi er krafa og frekari reynsla af iðkun hestamennsku,  þjálfun og keppni er kostur.

Hestakostur

Áhersla er lögð á að nemandi komi með öruggan, spennulausan og vel þjálfaðan hest með hreinar grunngangtegundir og tölt.

Æskilegt er að viðkomandi hafi sama hestinn allt námið en nemendum gefst einnig kostur á að þjálfa fleiri en einn hest til að nýta þá þekkingu og reynslu sem viðkomandi fær í gegnum námið.

LbhÍ hefur rétt til þess að hafna hesti uppfylli hann ekki ofangreindar kröfur.

Reiðtygi

  • Viðurkenndur reiðhjálmur
  • Reiðskór eða reiðstígvél
  • Hnakkur með viðurkennd ístöð
  • Beisli m/hringamél, stangamél
  • Reiðmúlar enskur og þýskur
  • Reiðtaumar
  • Snúrumúll og kaðall
  • Taumhringsgjörð og taumar
  • Pískur og hringtaumskeyri
  • Hafa aðganga að tamningaaðstöðu, s.s. hringgerði eða öðru afmörkuðu rými til þjálfunar.
  • Geta útvegað viðeigandi skeifur og hófhlífar.

Tryggingar

Nemendur sjá sjálfir um allar tryggingar. Krafa er gerð um að allir nemendur séu tryggðir en hver og einn velur hvort viðkomandi hross sé tryggt. LbhÍ og viðkomandi staðahaldari ber ekki ábyrgð á hrossum nemenda.

Kröfur um tölvukost

Til að taka þátt í náminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu og internetaðgangi. Bóklegur hluti námsins er rafrænn og mikilvægt að nemendur geti verið virkir á námsvef LbhÍ þar sem öll bókleg gögn eru sett inn

Nemandi þarf einnig að hafa aðgang að ritvinnsluforriti og töflureikniforriti t.d. word og excel.

Þá er nauðsynlegt fyrir nemanda að hafa virkt netfang og gott að hafa aðgang að Facebook.

Algengar spurningar

Vandræði vegna notendanafna eða lykilorða

Biðja má um í gegnum netfangið: nemskra@lbhi.is

Innskráning inn á kerfi LBHÍ

Keppnisnámshópar fyrr og nú

Keppnisnám vor 2025

  • Akranes – Hestamannafélagið Dreyri – reiðkennari Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
  • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari Hjörvar Ágústsson
  • Sauðarkrókur – Hestamannafélagið Skagfirðingur – reiðkennari Finnbogi Bjarnason:
  • Kópavogur – Hestamannaélagið Sprettur – reiðkennari Snorri Dal

Umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Endurmenntun LBHÍ

Birna Tryggvadóttir Thorlacius

Verkefnastjóri og reiðkennari
birnat@lbhi.is
+354 433 5000

Birna er með reiðkennara- og þjálfaramenntun frá Háskólanum á Hólum og B.Sc. gráðu í Búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún hefur starfað sem reiðkennari bæði innan- og utanlands og starfað hjá hestamannafélögum víðsvegar um landið.  Birna hefur komið víða að félagsmálum hestamanna og verið í ýmsum nefndum þeim tengdum. Til að mynda stjórn LH, fagráði í hrossarækt ofl.

Birna hefur mikla og víðtæka reynslu á sviðum hestamennskunnar og starfað innan greinarinnar til fjölda ára. Auk þess að hafa mikla reynslu af bæði keppni og sýningum, hefur hún ræktað hross í fremstu röð kennd við Garðshorn á Þelamörk. Það bú er margverðlaunað fyrir góðan árangur og var til að mynda keppnishestabú ársins 2024.

 

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590