Reiðmaðurinn II

– DÝPKAÐU FÆRNINA OG BYGGÐU MARKVISST OFAN Á GRUNNINN –

REIÐMAÐURINN II 2026-2027

  • LÉTTIR Á AKUREYRI – 1 PLÁSS LAUS
    Reiðkennari: Erlingur Ingvarsson
    Verklegar helgar á haustmisseri:
    16.-18. október
    6.-8. nóvember
    20.-21. nóvember
    11.-13. desember

  • NEISTI Á BLÖNDUÓSI – FULLT
    Reiðkennari: Ísólfur Líndal Þórisson
    Verklegar helgar á haustmisseri:
    16.-18. október
    6.-8. nóvember
    20.-21. nóvember
    11.-13. desember

  • JÖKULL Á FLÚÐUM – FULLT
    Reiðkennari: Hinrik Sigurðsson
    Verklegar helgar á haustmisseri:
    16.-18. október
    6.-8. nóvember
    20.-21. nóvember
    11.-13. desember
  • SLEIPNIR Á SELFOSSI – FULLT
    Reiðkennari: Hjörvar Ágústsson
    16.-18. október
    6.-8. nóvember
    20.-21. nóvember
    11.-13. desember

  • SNÆFELLINGUR Á SNÆFELLSNESI – FULLT 
    Reiðkennari: Bjarki Gunnarsson
    Verklegar helgar á haustmisseri:
    9. – 11. október
    6. – 8. nóvember
    20. – 22. nóvember
    11. – 13. desember

  • SPRETTUR Í KÓPAVOGI – 1 PLÁSS LAUST
    Reiðkennari: Haukur Bjarnason
    9. – 11. október
    6. – 8. nóvember
    20. – 22. nóvember
    11. – 13. desember

  • SÖRLI Í HAFNARFIRÐI – 2 PLÁSS LAUS
    Reiðkennari: Katla Snorradóttir
    Verklegar helgar á haust- og vormisseri:
    16.-18. október
    06.-08. nóvember 
    20.-22. nóvember
    11. – 13. desember
    15. – 17. janúar
    12. – 14. febrúar
    12. – 14. mars
    9. – 11. apríl

Reiðmaðurinn er nám á vegum Endurmenntunar LBHÍ fyrir hestafólk sem vill taka næsta skref með hestinum sínum. Námið sameinar verklega kennslu, bóklegt fjarnám og markvissa heimavinnu milli kennsluhelga. Verklegi hlutinn er í forgrunni þar sem nemendur vinna með eigin hest undir leiðsögn reyndra reiðkennara, læra af kennaranum, samnemendum og eigin framvindu.

Námið er einingarbært á framhaldsskólastigi og byggist upp í þrepum: Reiðmaðurinn I leggur grunninn, Reiðmaðurinn II dýpkar þekkingu og færni, og Reiðmaðurinn III er einstaklingsmiðað framhald þar sem nemandi vinnur markvisst út frá eigin markmiðum og þjálfunaráætlun.

REIÐMAÐURINN II

Reiðmaðurinn II er framhald af Reiðmanninum I og hentar nemendum sem vilja dýpka þekkingu sína, bæta reiðfærni og vinna markvissar með þjálfun hestsins.

Í Reiðmanninum I er grunnurinn lagður og í Reiðmanninum II er byggt ofan á þann grunn. Nemendur halda áfram að vinna með liðkandi og styrkjandi æfingar, en áherslan færist enn frekar að líkamsbeitingu hestsins, jafnvægi, hreyfifræði og þjálfunarfræði.

Verklegi hlutinn er áfram í forgrunni og eru átta verklegar helgar yfir veturinn. Nemendur vinna með eigin hest undir leiðsögn reyndra reiðkennara, fá skýra endurgjöf og læra að nýta æfingar með markvissum hætti til að bæta hestinn. Á milli verklegra helga vinna nemendur áfram heima og tengja þannig námið beint við daglega þjálfun.

Námið er tvær annir og metið til 19 eininga á framhaldsskólastigi (fein). Til að sækja um Reiðmanninn II þurfa nemendur að hafa lokið Reiðmanninum I eða Knapamerki 5.

 Kannaðu rétt þinn á endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá þínu stéttarfélagi. Staðfestingargjald 115.000 kr. Eftirstöðvar 300.000 greiðast í þremur vaxtalausum greiðslum frá 1. nóv  – 1. apríl. –

FYRIR HVERJA
Reiðmaðurinn II er fyrir hestafólk sem:

  • Hefur lokið Reiðmanninum I og/eða Knapamerki 5
  • Vill halda áfram að þróa eigin reiðfærni
  • Vill skilja betur líkamsbeitingu, jafnvægi og burð hestsins
  • Vill vinna markvissar með æfingar sem bæta hestinn
  • Vill dýpka þekkingu sína á þjálfunarfræði, hreyfifræði og reiðmennsku

HELSTU ÁHERSLUR

  • Liðkandi og styrkjandi æfingar við hendi og á baki
  • Líkamsbeiting hestsins og áhrif knapans á hana
  • Orsakir og afleiðingar misstyrks
  • Samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga
  • Jafnvægi, burður og forsendur söfnunar
  • Markvissari notkun æfinga til að bæta hestinn

 FÆRNI SEM NEMENDUR ÖÐLAST

  • Vald á liðkandi og styrkjandi æfingum til að bæta jafnvægi, burð og gangtegundir hestsins
  • Færni í að stilla og sveigja hestinn rétt til hægri og vinstri
  • Vald á framhluta hestsins
  • Færni í að færa afturhluta út úr hringnum
  • Færni í að framkvæma æfinguna opinn sniðgang, að minnsta kosti á feti
  • Færni í að hafa áhrif á líkamsburð hestsins og læra að fá hestinn til að vinna í réttri líkamsbeitingu
  • Færni í að ríða hestinum á vinnuhraða á öllum gangtegundum í léttum, sjálfberandi og hvelfdum líkamsburði
  • Færni í að ríða hestinum við taum á feti, brokki, stökki og/eða tölti
  • Vald á hraðabreytingum á tölti og brokki
  • Hæfni í að auka léttleika í samspili hvetjandi og hamlandi ábendinga
  • Skilning á forsendum söfnunar og færni í að vinna markvisst að henni
  • Skilning á notkun íslenskra stangaméla og fá æfingi í notkun þeirra
  • Þekking og færni í að setja upp sýningu fyrir gangtegundakeppni
  • Færni í að ríða fimiverkefni
  • Færni í að nýta æfingar úr náminu til að bæta hestinn
  • Þekking á virkni og forsendum lokaðs sniðgangs og afturfótasnúnings
  • Færni í að hafa stjórn á ytri hlið hestsins með æfingum á borð við lokaðan sniðgang, afturfótasnúning og að minnka baug
  • Færni í að ríða hesti á yfirferð, tölti og/eða skeiði
  • Færni í að greina þjálfunarvandamál og beita þekkingu og verklagni til að leysa þau

Að loknum námi hefur nemandi aukið færni sína í að greina, skilja og þjálfa hestinn á markvissan hátt. Námið er jafnframt góður undirbúningur fyrir Reiðmanninn III, þar sem unnið er einstaklingsmiðað út frá markmiðum hvers nemanda.

Nánari upplýsingar um skipulag námsins, námsmat, undirbúningskröfur, kostnað og fleira er að finna hér fyrir neðan og mikilvægt að kynna sér þær upplýsingar vel áður en gengið er frá umsókn.

Dagsetningar verklegra helga fyrir áramót verða birtar fljótlega.

Fræðsludagur Reiðmannsins verður haldinn laugardaginn 31. október í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og eftir hádegi er dagskrá í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði.

Kostnaður við Reiðmanninn II veturinn 2026-2027

Verð fyrir fullt nám í Reiðmanninum II í tvær annir er 415.000 kr. sem samsvarar tæpum 22 þúsund kr. á hverja framhaldsskólaeiningu í náminu. Námið er samtals 19 framhaldsskólaeiningar (fein).

Þegar nemandi hefur samþykkt inngöngu í námið greiðist staðfestingargjald að fjárhæð 115.000 kr. sem er óafturkræft. Staðfestingargjaldið er með eindaga 2. júlí 2026 og dregst frá heildarverði námskeiðsins.

Eftirstöðvum er skipt niður á þrjá gjalddaga: 1. nóv., 1. feb. og 1. apr. Hver greiðsla er 100.000 kr.

Hægt er að staðgreiða námskeiðsgjaldið í upphafi náms. Athygli er vakin á því að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína sem sækja nám og námskeið og í flestum tilvikum þarf að greiða námskeiðsgjaldið að fullu til að fá fullnaðar endurgreiðslu.

Nemandi sem hefur þegið pláss í Reiðmanninum og greitt staðfestingargjald ber að greiða námskeiðsgjaldið að fullu.

ÁRÍÐANDI

Um leið og nemandi hefur þegið pláss og verið samþykktur inn í námið skuldbindur nemandinn sig til að borga fullt námskeiðsgjaldið óháð því hvort að nemandi þurfi að hætta í náminu eða ákveði að hætta fyrir námslok. Það er því ekki hægt að fá námskeiðsgjald fellt niður þótt nemandi hætti námi áður en námstíma lýkur.

Innifalið í námsskeiðsgjaldinu er kennsla reyndra reiðkennara og sérfræðinga, aðgangur að náminu, fræðsludagur sem fram fer í byrjun nóvember, bóklegt fjarnám, reiðtímar, sýnikennslur og fyrirlestrar. Aðgangur að reiðhöll og aðstöðu henni tengdri á vinnuhelgum.

Hesthúspláss, fóður og undirburður í stíur eru ekki innifalin í verðinu og nemendur sem koma annarsstaðar að á námsstað útvega sér hesthúspláss sjálfir sé þess óskað. Dvalar- og fæðiskostnaður nemenda og hluti námsgagna er ekki innifalinn í verði.

Óski nemandi eftir aukatímum vegna verklegrar þjálfunar umfram tíma í námstöflu þarf viðkomandi að semja sérstaklega við viðkomandi kennara.

Sæki nemandi um að fá að taka endurtökupróf fyrir verklega hlutann er greitt sérstaklega fyrir það 15.000 kr.

Skipulag námsins

Námskeiðsröðin, Reiðmaðurinn, er byggð upp á svipaðan hátt og önnur námskeið á vegum Endurmenntunar LbhÍ, með markvissum verklegum tímum en við bætist bóklegur hluti í gegnum fjarnámsvef skólans, Uglu.

Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum í gegnum netið. Því er mikilvægt að allir séu vel kunnugir slíkum samskiptum.

Verklegir námshlutar í hverjum hluta grunnnáms reiðmannsins eru kenndir á námskeiðum, átta helgar frá september fram í apríl, (fjórar vinnuhelgar á hvorri önn).

Innan verklega hlutans er fyrst og fremst vinna með eigin hest. Unnið er að jafnaði frá 14:00-18:00 á föstudögum og frá 8:00-17:00 laugardögum og sunnudögum en tíminn getur verið breytilegur eftir aðstæðum. Mismunandi er hvort unnið er í hópum eða lagt upp með einstaklingstíma, allt eftir viðfangsefninu.

Lögð er mikil áhersla á að samnemendur fylgist með og læri af hver öðrum og jafnframt er mikil áhersla lögð á markvissa heimavinnu milli námskeiðshelga.

Mat er lagt á vinnu og framfarir nemandans yfir námstímann.

Bóklegi hlutinn er kenndur í fjarnámsformi þar sem námsefnið er aðgengilegt á fjarnámsvef skólans og fyrirlestrar og/eða sýnikennslur fara fram á vefnum með reglulegu millibili yfir námstímann.

Nýtt fyrir Reiðmannsnámið haustið 2025 er aðgangur nemenda að sérvöldum myndböndum í eigu Guðmars Þórs Péturssonar en Guðmar Þór er flestum sem stunda hestaíþróttir kunnugur enda er hann reyndur reiðkennari og knapi með yfir 25 ára reynslu í reiðmennsku og þjálfun. Myndböndin eru valin úr stærra safni Guðmars Þórs en þar er hægt að finna fjölbreytt úrval kennsluefnis, reiðtíma, fyrirlestra og sýnikennslur.

Ef nauðsynlegt þykir að færa til verklegar helgar, s.s. vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra orsaka, áskilur Endurmenntun LbhÍ sér rétt til þess að gera það, í samráð við verklegan kennara.

Nánara skipulag námsins er kynnt við upphaf hvers áfanga.

Innritun - Upphaf náms

Sótt er um námið á rafrænan hátt í gegnum heimasíðu Lbhí (sækja um). Óskað er sérstaklega eftir því að umsækjendur tilgreini reynslu sína af hrossum, þátttöku í hrossatengdum námskeiðum og komi aðeins inn á hrossaeignina í athugasemdadálki í umsóknarferlinu.

Umsóknafrestur er til og með 5. júní 2026. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Farið verður farið yfir umsóknirnar að umsóknarfresti loknum og ef þátttakandur uppfylla skilyrði og næg þátttaka er á hverjum stað (12 knapar) fá nemendur staðfestingu á netfang sem fylgdi umsókninni.  Skilyrði er að þátttakendur hafi góðan aðgang að hrossum og þeir sem hafa mikla reynslu af hestamennsku ganga fyrir.

Við mat á umsóknum er tekið tillit til þess hversu langt er síðan umsækjendur luku námi í Reiðmanninum I. Með því er leitast við að tryggja að nemendur frá fyrra ári geti notið samfellu í námi. Einnig er tekið tillit til aldursdreifingar og kynjahlutfalls, miðað við umsóknir sem berast.

 

Um leið og umsækjandi hefur þegið pláss í Reiðmanninum I telst vera kominn á skuldbindandi samningur og ber umsæjanda að greiða staðfestingargjald 115.000 kr. sem er óafturkræft.

Nánari upplýsingar um námið veitir Birna Tryggvadóttir Thorlacius verkefnisstjóri Reiðmannsins í síma 699 6116 eða með tölvupósti á netfangið birnat@lbhi.is.

Námsmat

Bóklegt. Námsefni bóklega hluta reiðmannsins í hverjum áfanga fyrir sig er aðgengilegt á fjarnámsvef skólans Canvas.

Bóklega efnið fylgir í megindráttum verklega hluta námsins en að auki er farið á breiðum grunni í ýmist efni tengt hestahaldi, fóðrun og hirðingu, kynbótum, heilsufræði og fleira.

Á hverri önn fyrir sig er nemendum sett fyrir tvö verkefni úr námsefni annarinnar. Verkefnin eru sett inn á kennsluvefinn og hafa nemendur fyrirfram ákveðinn tíma til að leysa verkefnin og skila inn á kennslusíðu áfangans.

Á haustmisseri (oftast í nóvember) er haldinn svo kallaður fræðsludagur í Menntaskólanum í Borgarnesi og reiðhöllinni á Mið-Fossum. Fræðsludagurinn byrjar kl. 9 og er til kl. 17. Á fræðsludeginum er fremstu sérfræðingar fengnir til að halda erindi á sínu fræðasviði auk þess sem haldin er sýnikennsla í reiðhöllinni á Mið-Fossum. Dagskrá fræðsludagsins er kynnt í byrjun haustannar.

Á vormisseri er bókleg fræðsla á Teams auk þess sem haldin er sýnikennsla í reiðhöllinni á Mið-Fossum sem nemendur geta einnig fylgst með í streymi. 

Einkunn bóklega hluta hverrar annar samanstendur af meðaleinkunn þessara tveggja verkefna.

Verklegt. Stöðumat fer fram einu sinni á önn. Fyrirkomulag námsmatsins er breytilegt eftir viðfangsefnum hverrar annar. Í lok hverrar annar er samræmt námsmat og staðlað verkefni.

Útskriftarhelgi Reiðmannsins

Útskriftarhelgi Reiðmannsins er haldinn í reiðhöll LbhÍ Mið-Fossum í Borgarfirði um mánaðarmótin apríl/maí hvert. 

Undirbúningskröfur

Að nemendur hafi lokið Reiðmaninnum I frá Endurmenntun LBHÍ.

Auk þess þurfa nemendur  að hafa áhuga á hestamennsku og eiga eða hafa góðan aðgang að hestum sem henta í námið.

Nemendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.

Nám í Reiðmanninum I og haldbær reynsla í reiðmennsku, og hestahaldi er krafa og frekari reynsla af iðkun hestamennsku, þjálfun og keppni í er kostur.

Kröfur um tölvukost

Til að taka þátt í náminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu með tengingu við Internetið. Nemandi þarf að hafa aðgang að ritvinnsluforriti og töflureikniforriti eins og t.a.m. word og excel. Þá er nauðsynlegt fyrir nemanda að hafa virkt netfang og gott að hafa aðgang að Facebook.

Reiðtygi

  • Viðurkenndur reiðhjálmur
  • Reiðskór eða reiðstígvél
  • Hnakkur með viðurkennd ístöð
  • Beisli m/hringamél, stangamél
  • Reiðmúlar enskur og þýskur
  • Reiðtaumar
  • Snúrumúll og kaðall
  • Taumhringsgjörð og taumar
  • Pískur og hringtaumskeyri
  • Hafa aðganga að helstu járningarverkfærum og tamningaaðstöðu, s.s. hringgerði eða öðru afmörkuðu rými til þjálfunar.
  • Geta útvegað viðeigandi skeifur og hófhlífar.

Hestakostur

Áhersla er lögð á að nemandi komi með öruggan, spennulausan og vel þjálfaðan hest með hreinar grunngangtegundir og tölt.

Æskilegt er að viðkomandi hafi sama hestinn allt námið og stundi markvisst heimanám á milli verklegra helga, þ.e. hafi hann á húsi allan námstímann. Æskilegt getur verið að hafa annan hest á húsi og þjálfa samhliða til að nýta enn betur þá þekkingu og reynslu sem viðkomandi fær í gegnum námið.

Tryggingar

Nemendur sjá sjálfir um allar tryggingar. Krafa er gerð um að allir nemendur séu tryggðir en hver og einn velur hvort viðkomandi hross sé tryggt. LbhÍ og viðkomandi staðahaldari ber ekki ábyrgð á hrossum nemenda.

Algengar spurningar

Vandræði vegna notendanafna eða lykilorða

Biðja má um í gegnum netfangið: nemskra@lbhi.is

Innskráning inn á kerfi LBHÍ

   

 

Reiðmannshópar fyrr og nú

Reiðmannshópar 2025-2026

 

    • Dreyri á Akranesi: Inga María S. Jónínudóttir reiðkennari
      Verklegar helgar:
      • 10. – 12. okt.
      • 31. okt – 2. nóv.
      • 21. – 23. nóv.
      • 12. – 14. des.
      • 23. – 25. jan.
      • 20. – 22. feb.
      • 6. – 8. mar.
      • 27. – 29. mar.
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Léttir á Akureyri: Erlingur Ingvarsson reiðkennari
      Verklegar helgar:
      • 10. – 12. okt.
      • 7. – 9. nóv.
      • 21. – 23. nóv.
      • 12. – 14. des.
      • 16. – 18. jan.
      • 6. – 8. feb.
      • 6. – 8. mar.
      • 27. – 29. mar.
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Geysir á Hellu: Ásta Björnsdóttir reiðkennari
      Verklegar helgar:
      • 3. – 5. okt.
      • 31. okt – 2. nóv.
      • 21. – 23. nóv.
      • 12. – 14. des.
      • 16. – 18. jan.
      • 13. – 15. feb.
      • 13. – 15. mar.
      • 10. – 12. apr.
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Sprettur í Kópavogi: Hanna Rún Ingibergsdóttir reiðkennari
      Verklegar helgar:
      • 3. – 5. okt.
      • 31. okt – 2. nóv.
      • 21. – 23. nóv.
      • 12. – 14. des.
      • 9. – 11. jan.
      • 20. – 22. feb.
      • 6. – 8. mar.
      • 17. – 19. apr.
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)
    • Skagfirðingur í Skagafirði: Finnbogi Bjarnason reiðkennari
      Verklegar helgar:
      • 3. – 5. okt.
      • 17. – 19. okt.
      • 14. – 16. nóv.
      • 5. – 7. des.
      • 16. – 18. jan.
      • 6. – 8. feb.
      • 6. – 8. mar.
      • 27. – 29. mar.
      • 25. – 26. apríl (Útskriftarhelgi á Mið-Fossum í Borgarfirði)

Fræðsludagur Reiðmannsins fór fram laugardaginn 8. nóvember.

Reiðmannshópar 2024-2025

  • Egilsstaðir – Hestamannafélagið Freyfaxi – reiðkennari Haukur Bjarnason
  • Hestamiðstöð LbhÍ, Mið-Fossar – reiðkennari Bjarki Þór Gunnarsson
  • Hvammstangi – Hestamannafélagið Þytur – reiðkennari Þorsteinn Björnsson
  • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari Henna Johanna Sirén
  • Mosfellsbær – Hestamannafélagið Hörður – reiðkennari Steinar Sigurbjörnsson
  • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari Árný Oddbjörg Oddsdóttir

Reiðmannshópar 2022-2023

  • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari Hjörvar Ágústsson
  • Selfoss  – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari Hanna Rún Ingibergsdóttir
  • Akureyri – Hestamannafélagið Léttir – reiðkennari Erlingur Ingvarsson

    Reiðmannshópar 2020-2022

    • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari er Hekla Katharína Kristinsdóttir
    • Hafnarfjörður – Hestamannafélagið Sörli – reiðkennari er Ásta Björnsdóttir
    • Flúðir hópur 1 – Reiðhöllin á Flúðum – reiðkennari er Þórarinn Ragnarsson
    • Flúðir hópur 2 – Reiðhöllin á Flúðum – reiðkennari er Ragnhildur Haraldsdóttir
    • Akureyri – Hestamannafélagið Léttir – reiðkennari er Reynir Atli Jónsson

    Reiðmannshópar 2019-2020

     

    • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari er Hanna Rún Ingibergsdóttir
    • Mosfellsbær – Hestamannafélagið Hörður – reiðkennari á fyrsta ár var Ísleifur Jónasson og á seinna ári er reiðkennari Haukur Bjarnason
    • Hella – Hestamannafélagið Geysir – reiðkennari á fyrsta ári var Sigvaldi Lárus Guðmundsson og á seinna ári er reiðkennari Ísleifur Jónasson

    Reiðmannshópar 2018-2020

    • Kópavogur 1 – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari var Hekla Katharina Kristinsdóttir
    • Kópavogur 2 – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari var Atli Guðmundsson
    • Hafnarfjörður – Hestamannafélagið Sörli – reiðkennari var Hinrik Þór Sigurðarson
    • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari var Trausti Þór Guðmundsson

    Reiðmannshópar 2017-2019

    • Borgarnes 1 – Faxaborg Borgarnesi – reiðkennari var Ísleifur Jónasson
    • Borgarnes 2 – Faxaborg Borgarnesi – reiðkennari var Ólafur Andri Guðmundsson
    • Mosfellsbær – Hestamannafélagið Hörður – reiðkennari var Hinrik Þór Sigurðsson
    • Krókur í Ásahreppi – reiðkannari var Reynir Örn Pálmason

    Reiðmannshópar 2016-2018

    • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari var Hinrik Þór Sigurðsson
    • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkannari var Sigvaldi Lárus Guðmundsson

    Reiðmannshópar 2015-2017

    • Hafnarfjörður – Hestamannafélagið Sörli – reiðkennari var Halldór Guðjónsson á fyrra ári og á seinna ári var reiðkennari Þórdís Anna Gylfadóttir
    • Flúðir – Hestamannafélagið Smári – reiðkennari var Ísleifur Jónasson
    • Krókur í Ásahreppi – reiðkennari var Reynir Örn Pálmason

    Reiðmannshópar 2014-2016

    • Kópavogur – Hestamannafélagið Sprettur – reiðkennari var Heimir Gunnarsson
    • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari var Þórdís Erla Gunnarsdóttir

    Reiðmannshópar 2013-2015

    • Reykjavík, Víðidalur – Hestamannafélagið Fákur – reiðkennari var Anna Valdimarsdóttir á fyrra ári og á seinna ári var reiðkennari Heimir Gunnarsson
    • Mosfellsbær – Hestamannafélagið Hörður – reiðkennari var Halldór Guðjónsson

    Reiðmannshópar 2012-2014

    • Reykjavík, Víðidalur – Hestamannafélagið Fákur – reiðkennari var Halldór Guðjónsson
    • Flúðir – Hestamannafélagið Smári – reiðkennari var Reynir Örn Pálmason
    • Selfoss – Hestamannafélagið Sleipnir – reiðkennari var Þórdís Erla Gunnarsdóttir
    • Miðfossar – reiðkennari var Heimir Gunnarsson
    • Akureyri – Hestamannafélagið Léttir – reiðkennari var Erlingur Ingvason

    Reiðmannshópar 2011-2013

    • Reykjavík, Víðidalur – Hestamannafélagið Fákur – reiðkennari var Anna Sigríður Valdimarsdóttir
    • Hella – Hestamannafélagið Geysir – reiðkennari var Reynir Örn Pálmason

    Reiðmannshópar 2010-2012

    • Hafnarfjörður – Hestamannafélagið Sörli – reiðkennari var Halldór Guðjónsson
    • Flúðir – Hestamannafélagið Smári – reiðkennari var Ísleifur Jónasson
    • Borgarnes – reiðkennari var Heimir Gunnarsson
    • Akureyri – Hestamannafélagið Léttir – reiðkennari var Erlingur Ingvason
    • Egilsstaðir, Iðavellir – Hestamannafélagið Freyfaxi – reiðkennari var Reynir Örn Pálmason

    Reiðmannshópar 2009-2011

    • Dalland, Mosfellsbæ – reiðkennari var Halldór Guðjónsson
    • Hella – Hestamannafélagið Geysir – reiðkennari var Ísleifur Jónasson

    Reiðmannshópar 2008-2010

    • Miðfossar, Borgarfirði – hópur 1 – reiðkennari var Reynir Aðalsteinsson
    • Miðfossar, Borgarfirði – hópur 2 – reiðkennari var Reynir Aðalsteinsson
    • Miðfossar, Borgarfirði – hópur 3 – reiðkennari var Reynir Aðalsteinsson
    • Miðfossar, Borgarfirði – hópur 4 – reiðkennari var Reynir Aðalsteinsson

    Umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Endurmenntun LBHÍ

    Birna Tryggvadóttir Thorlacius

    Verkefnastjóri og reiðkennari
    birnat@lbhi.is
    +354 699 6116

    Birna er með reiðkennara- og þjálfaramenntun frá Háskólanum á Hólum og B.Sc. gráðu í Búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún hefur starfað sem reiðkennari bæði innan- og utanlands og starfað hjá hestamannafélögum víðsvegar um landið.  Birna hefur komið víða að félagsmálum hestamanna og verið í ýmsum nefndum þeim tengdum. Til að mynda stjórn LH, fagráði í hrossarækt ofl.

    Birna hefur mikla og víðtæka reynslu á sviðum hestamennskunnar og starfað innan greinarinnar til fjölda ára. Auk þess að hafa mikla reynslu af bæði keppni og sýningum, hefur hún ræktað hross í fremstu röð kennd við Garðshorn á Þelamörk. Það bú er margverðlaunað fyrir góðan árangur og var til að mynda keppnishestabú ársins 2024.

    Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

    Keldnaholt - 112 Reykjavík

    Sími 433-5000

    Kt. 411204-3590