Reiðmaðurinn III

– Uppbyggjandi framhaldsþjálfun hestsins –

 Nám í Reiðmanninum III er sjálfstætt framhald af Reiðmanninum I og II. Markmiðið er að nemandinn öðlist aukna færni í því sem hann hefur áður lært og geti bætt sinn hest á enn markvissari hátt með hjálp æfinga og útsjónarsemi.

Nemandinn öðlast meiri færni í markvissri notkun þeirra æfinga sem hafa hvað mest nytsamlegt gildi. Nemendur læra að setja upp þjálfunaráætlun og vinna út frá henni. Kynnt verða fyrir nemendum mismunandi útfærslur af þjálfunarstigum klassískrar reiðmennsku og unnið út frá þeim. Námskeiðið er einstaklingsmiðað og verður kennsla miðuð út frá markmiðum hvers og eins.

Námið er metið til 9 eininga á framhaldsskólastigi (fein). Einingagjöfin metur þá heildarvinnu sem ætlast er til að nemendur leggi fram og er háð því að nemendur hafi sótt 90% verklegra tíma í staðarnámi og standist námsmat.
Að baki hverri einingu er gert ráð fyrir 3 vinnudögum hjá nemanda, hvort sem um er að ræða fyrirlestra,
verklega tíma eða heimanám. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og lokið námi
í Reiðmanninum I og II og/eða 5. stigi  Knapamerkjanna.

Námskeiðið nær yfir fjórar helgar, frá föstudegi til sunnudags og eru verklegu helgarnar kenndar frá ca. miðjum september fram í miðjan desember. Á föstudögum er kennt frá ca. kl. 14:00-18:00 og á laugardögum og sunnudögum frá ca. kl. 8:00-17:00.

Fyrstu helgina er gerð ítarleg úttekt á knapa og hesti. Eftir fyrstu helgi setur knapinn upp markmið annarinnar og þjálfunaráætlun út frá henni. Þjálfunaráætlunin er byggð á bóklegu efni um þjálfunarstig og liggur til grundvallar lokaúttektar á knapa og hesti. Kennslan verður einstaklingsmiðuð út frá markmiðum hvers og eins.

Verð: 210.000 kr. 

Þegar nemandi hefur samþykkt inngöngu í námið ber honum að greiða staðfestingargjald að fjárhæð 100.000 kr. sem er óafturkræft. Staðfestingargjald er innheimt 2. júlí 2024. Staðfestingargjaldið dregst frá heildarverði námskeiðsins. Endurmenntun LBHÍ skiptir eftirstöðvum kr. 110.000 niður á tvo gjalddaga: 1. október og 1. nóvember og er hvor greiðsla kr. 55.000 kr.

Hægt er að óska eftir því að greiða námskeiðsgjaldið að fullu til að fá staðfestingu strax til að sækja um endurgreiðslu námskeiðsgjalds til stéttarfélags. Að öðrum kosti er hægt að sækja um staðfestingu að námi loknu.

ATH. Nemandi sem staðfest með tölvupósti að þiggja pláss í Reiðmanninum III ber að greiða 110.000 kr. staðfestingargjald sem er óafturkræft. Nemandi sem hefur hafið nám og sótt eina að fleiri verklegar helgar ber að greiða námskeiðsgjaldið að fullu.

REIÐMAÐURINN III haustið 2024
Verð: 210.000 kr. (greiðsludreifing í boði)

  • Sprettur í Kópavogi: Þórarinn Ragnarsson reiðkennari
    Verklegar helgar: 11.-13. okt., 1.-3. nóv., 29.nóv-1. des., 13.-15. des.
  • Skagfirðingi á Sauðárkróki: Finnbogi Bjarnason reiðkennari
    Verklegar helgar: 04.-06. okt., 25.-27. okt., 22.-24. nóv., 06.-08. des.
  • Freyfaxi á Egilsstöðum: Haukur Bjarnason reiðkennari
    Verklegar helgar: 11.-13. okt., 1.-3. nóv., 22.-24. nóv., 13.-15. des.
  • Dreyri á Akranesi: Snorri Dal reiðkennari
    Verklegar helgar: Dagsetningar liggja ekki fyrir

– Fræðsludagur Reiðmannsins er haldinn laugardaginn 9. nóvember kl. 9-17 – 

Innritun - Upphaf náms

Sótt er um námið á rafrænan hátt í gegnum heimasíðu LbhÍ. Óskað er sérstaklega eftir því að fólk tilgreini reynslu sína af hrossum, þátttöku í hrossatengdum námskeiðum og komi aðeins inn á hrossaeignina í athugasemdadálki í umsóknarferlinu.

Umsóknafrestur er til og með 10. júní. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Farið verður farið yfir umsóknirnar að umsóknarfresti loknum og ef þátttakandur uppfylla skilyrði og næg þátttaka er á hverjum stað (12-14 knapar) fá nemendur staðfestingu á netfang sem fylgdi umsókninni.  Skilyrði er að þátttakendur hafi góðan aðgang að hrossum og þeir sem hafa mikla reynslu af hestamennsku ganga fyrir. Einnig er tekið tillit til aldursdreifingar og kynjahlutfalls, miðað við umsóknir sem berast.

Nánari upplýsingar um námið veitir Randi Holaker verkefnisstjóri Reiðmannsins í síma 844 5546 og/eða með tölvupósti á netfangið randi@lbhi.is

Námsmat

Bóklegt.

Námsefni bóklega hluta reiðmannsins í hverjum áfanga fyrir sig er aðgengilegt á fjarnámsvef skólans Canvas.

Bóklega efnið fylgir í megindráttum verklega hluta námsins en að auki er farið á breiðum grunni í ýmist efni tengt hestahaldi, fóðrun og hirðingu, kynbótum, heilsufræði og fleira.

Á hverri önn fyrir sig er nemendum sett fyrir tvö verkefni úr námsefni annarinnar. Verkefnin eru sett inn á kennsluvefinn og hafa nemendur fyrirfram ákveðinn tíma til að leysa verkefnin og skila inn á kennslusíðu áfangans. Einkunn bóklega hluta hverrar annar samanstendur af meðaleinkunn þessara tveggja verkefna.

Við vekjum athygli á að skila þarf öllum bóklegum verkefnum til að fá útskriftarskírteini í Reiðmanninum. 

Einu sinni til tvisvar á ári er bóklegur dagur haldinn í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði. Dagsetningar og dagskrá eru kynntar í byrjun hvorrar annar.

Verkefnisstjóri Reiðmannsins heldur einnig fundi með nemendum í gegnum fjarfundabúnaðinn Teams 1-2 á hvorri önn, eða eftir þörfum.

Verklegt

Stöðumat fer fram einu sinni á önn. Fyrirkomulag námsmatsins er breytilegt eftir viðfangsefnum hverrar annar. Í lok hverrar annar er samræmt námsmat og staðlað verkefni.

 

Undirbúningskröfur

Nemendur þurfa að hafa áhuga á hestamennsku og eiga eða hafa góðan aðgang að hestum sem henta í námið.

Nemendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.

Grunnreynsla í reiðmennsku og hestahaldi er krafa og frekari reynsla af iðkun hestamennsku,  þjálfun og keppni í er kostur.

Kröfur um tölvukost

Til að taka þátt í náminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu og internetaðgangi. Bóklegur hluti námsins er rafrænn og mikilvægt að nemendur geti verið virkir á námsvef LbhÍ þar sem öll bókleg gögn eru sett inn

Nemandi þarf einnig að hafa aðgang að ritvinnsluforriti og töflureikniforriti t.d. word og excel.

Þá er nauðsynlegt fyrir nemanda að hafa virkt netfang og gott að hafa aðgang að Facebook.

Reiðtygi

  • Viðurkenndur reiðhjálmur
  • Reiðskór eða reiðstígvél
  • Hnakkur með viðurkennd ístöð
  • Beisli m/hringamél, stangamél
  • Reiðmúlar enskur og þýskur
  • Reiðtaumar
  • Snúrumúll og kaðall
  • Taumhringsgjörð og taumar
  • Pískur og hringtaumskeyri
  • Hafa aðganga að tamningaaðstöðu, s.s. hringgerði eða öðru afmörkuðu rými til þjálfunar.
  • Geta útvegað viðeigandi skeifur og hófhlífar.

Hestakostur

Áhersla er lögð á að nemandi komi með öruggan, spennulausan og vel þjálfaðan hest með hreinar grunngangtegundir og tölt.

Æskilegt er að viðkomandi hafi sama hestinn allt námið og stundi markvisst heimanám á milli verklegra helga, þ.e. hafi hann á húsi allan námstímann.

Einnig getur verið kostur að hafa annan hest á húsi og þjálfa samhliða til að nýta enn betur þá þekkingu og reynslu sem viðkomandi fær í gegnum námið.

LbhÍ hefur rétt til þess að hafna hesti uppfylli hann ekki ofangreindar kröfur.

Tryggingar

Nemendur sjá sjálfir um allar tryggingar. Krafa er gerð um að allir nemendur séu tryggðir en hver og einn velur hvort viðkomandi hross sé tryggt. LbhÍ og viðkomandi staðahaldari ber ekki ábyrgð á hrossum nemenda.

Umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Endurmenntun LBHÍ

Randi Holaker

Verkefnisstjóri og reiðkennari
randi@lbhi.is
+354 844 5546

Randi er reiðkennari, tamningamaður og gæðingadómari með áralanga reynslu. Hún er íþróttadómari,  knapamerkjadómari og með réttindi til og tekur virkan þátt í að dæma gæðingafimi.

Randi býr á Skáney í Reykholtsdal í Borgarfirði ásamt Hauki Bjarnasyni og tveimur dætrum. Þar reka þau allsherjar hrossaræktarbú í mjög góðri aðstöðu og eru með ræktun, kennslu, þjálfun og sölu.

Randi hefur brennandi áhuga á reiðkennslu og býr yfir mikilli reynslu á því sviði, bæði innanlands og erlendis. Þá hefur hún sinnt kennslu við Landbúnaðarháskóla Íslands.