Sauðfjársæðingarnámskeið

 –  Haldið í samstarfi við búnaðarsambönd víða um land 

Sauðfjársæðingarnámskeiðið er ætlað sauðfjárbændum og þeim sem hafa áhuga á að starfa eða starfa nú þegar við sauðfjársæðingar. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

Sauðfjársæðingarnámskeið á vegum Endurmenntunar LBHÍ eru fyrir sauðfjárbændur og þau sem hafa áhuga á að starfa eða starfa nú þegar við sauðfjársæðingar og er námskeiðið bæði bóklegt og verklegt.

Í dag er lögð mikil áhersla á sæðingar með vernd­andi eða mögu­lega vernd­andi arf­gerðum gegn riðuveik. Því eru mikil tækifæri fólgin í því að endurmennta sig í sauðfjársæðingum með leiðsögn reynds dýralæknis og kennara

Á námskeiðinu er fjallað stuttlega um sögu sauðfjársæðinga. Æxlunarfærum sauðkinda er lýst og farið yfir helstu atriði varðandi æxlunarlíffræði þeirra. Einnig er fjallað um sæðingar, hvernig best er að standa að þeim, hvenær rétti sæðingatíminn er og hvað felst í samstillingu gangmála.

Kennd er meðferð sæðis og verklag við sæðingar í fjárhúsi. Þá er einnig rætt um smitvarnir.

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta sætt ær og metið hvernig bestum árangri verður náð.

KENNARI

Þorsteinn Ólafsson dýralæknir er kennari á námskeiðinu sem hefur áralanga reynslu af því að kenna sauðfjársæðingar í gegnum Endurmenntun LBHÍ.

Til að tryggja þátttöku þarf að ganga frá greiðslu í skráningarferlinu. Hægt er að greiða með debet- og kreditkorti.

NÁMSKEIÐSSTAÐIR

Hjá LBHÍ á Hvanneyri í Borgarfirði miðvikudaginn x. nóvember kl. 13-17
Stóra-Ármóti við Selfoss fimmtudaginn x. nóvember kl. 13-17
Húnabraut Blönduósi mánudaginn x. desember kl. 13-17
Búgarði í Eyjafirði þriðjudaginn x. desember kl. 13-17
Miðvangi á Egilsstöðum miðvikudaginn x. desember kl. 13-17
(ath. sú staða getur komið upp á námskeið verði sameinuð ef þátttaka er dræm)

VERÐ

35.000 kr. –  innifalið í verði er verkleg og bókleg kennsla, námskeiðsgögn og kaffiveitingar

– Við vekjum athygli á að hægt er að sækja um styrkt til stéttarfélaga fyrir námskeiðum og námi – 

Upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590