– Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur –
Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið
kennt frá árinu 2001 og notið mikilla vinsælda.
Námskeiðið er öllum opið og hentar meðal annars kennurum, sumarbústaðafólki, skógræktarfólki,
skógareigendum, ömmum, öfum og öðrum sem vilja læra hvernig hægt er að nota ferskan við
úr skóginum, garðinum eða sumarbústaðalandinu.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að grisja tré og hvar má finna efni í einstök tálguverkefni. Kennd eru örugg hnífsbrögð sem auka afköst og öryggi í tálgun með hníf og exi og hvernig á að umgangast og hirða bitáhöld
í ferskum viðarnytjum, svo sem hnífa, klippur, exi og sagir.
Þátttakendur læra að lesa í skógarefni út frá útliti, eiginleikum og notagildi gripanna og kynnast ýmsum íslenskum viðartegundum, eiginleikum þeirra og nýtingarmöguleikum.
Auk þess læra þátttakendur að tálga nytjahluti og skrautmuni úr efni sem almennt er kallað garðaúrgangur,
fullgera tálguhluti, þurrka, pússa og bera á, skefta, búa til sleif, fugl, bolla, snaga
eða það sem hugur þinn og geta leyfir.
Mikilvægt er að vera í vinnufatnaði og taka með svuntu og fatnað eftir veðri þar sem farið er í skógarferð.
Allt efni og áhöld eru til staðar á námskeiðinu, en í boði er að kaupa tálguhníf á námskeiðinu fyrir þá sem vilja.
Til að tryggja að þátttakendur fái sem mest út úr námskeiðinu er hámarks fjöldi þátttakenda 10.
—————————–
Tími: Fös. 14. janúar kl. 16-19 og lau. 15. janúar kl. 9-16
Staður: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.
Kennari: Ólafur Oddsson verkefnisstjóri Lesið í skóginn og fyrrverandi fræðslufulltrúi Skógræktarinnar.
Verð: 42.900 kr. – allur efniskostnaður, áhöld, kaffi og hádegismatur er innifalinn í verði námskeiðsins.
– Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám –
Umsókn
UMSAGNIR
„Hér voru fyrstu skrefin tekin og farið full tilhlökkunar heim til að halda áfram með vinnuna“
„Mjög skemmtileg fræðsla þar sem kennarinn sinnir öllum af natni og alúð.”
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590