Almennar upplýsingar um námið
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra hvernig hægt er að byggja úr torfi og grjóti, hvort sem um er að ræða veggi, kofa eða önnur smærri mannvirki.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt, og áhersla lögð á verklega kennslu. Þátttakendur fá innsýn í íslenska byggingararfleifð og kynnast verklagi við byggingu úr hefðbundnu íslensku efni, grjóti, skógarefni og torfi.
Fjallað verður um íslenska torfbæinn, uppbyggingu hans, efnisval og framkvæmd. Einnig verður rætt um hleðslu frístandandi veggja og stoðveggja úr torfi og grjóti.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að hlaða vegg og sitthvað fleira.
Kennari: Guðjón Kristinsson torf- og grjóthleðslumeistari, skrúðgarðyrkjumaður og stundakennari við LbhÍ.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 10
Tími: XXX hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi
Verð: (Námskeiðsgögn, áhöld, kaffi og hádegsmatur báða dagana er innifalið í verði námskeiðs)
Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590