Umhverfi, hönnun og lýðheilsa

– 4 ECTS eininga námskeið á BS stigi –

Umsókn

– Opið fyrir skráningar til 15. ágúst –

Umhverfi, hönnun og lýðheilsa er námskeið sem hentar öllum sem hafa áhuga á að efla þekkingu sína og færni á sviði umhverfis – og skipulagsfræða og nýtist meðal annars landslagsarkitektum, arkitektum, hönnuðum, starfsfólki á umhverfis- og skipulagssviði sveitarfélaga.

Á námskeiðinu kynnast nemendur margþættum áhrifum umhverfis og skipulags á heilsu og líðan. Fjallað er um undirstöðuatriði heilbrigðis og helstu áhættuþætti og sjúkdóma sem skerða mest lífslíkur og lífsgæði á Íslandi. Einstök atriði eru m.a. áhrif umhverfis og skipulags á tækifæri fólks til hreyfingar, útivistar og aðgengis að hollum mat, hreinu lofti og vatni.

Fjallað verður um samband umhverfis og félagslegra áhrifaþátta fyrir heilsu og líðan, svo og umhverfi og andlega líðan, útivistarsvæði í dreifbýli og þéttbýli, heilsugarða og notkun grænna svæða í meðferð heilsueflingu sjúklinga og áhættuhópa. Kynntar verða hugmyndir, möguleikar og takmarkanir á innleiðingu heilbrigðismats skipulagsákvarðana og stefnu stjórnvald.

Í lok námskeiðsins eiga nemendur að þekkja helstu áhrifavalda fyrir heilsu og líðan, geta fært sér í nyt þekkingu á sambandi umhverfis og heilsu, geta greint líklegar heilsufarsafleiðingar skipulagsákvarðana og komið á framfæri og skýrt fyrir almenningi og ráðamönnum, áhrif skipulagsframkvæmda á lýðheilsu.

Námskeiðið er á BS stigi og metið til 4 ECTS eininga. Kennsla hefst fimmtudaginn 22. ágúst og lýkur mánudaginn 30. september. Stundaskrá má nálgast hér.

Verkefnavinna/ritgerð vegur 70% af lokaeinkunn og lokapróf 30%.

Nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LBHÍ sækja sama námskeið og nemendur sem skráðir eru í BS nám í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Kennari er Ása Katrín Bjarnadóttir landslagsarkitekt. Ása Katrín hefur lengi haft áhuga á skipulagi borga og bæja og framvindu og þróun byggðar.

Tími: Kennsla hefst fim. 22. ágúst og lýkur með prófi fyrri hluta októbermánaðar. 

Verð: 44.000 kr.

– Við minnum á að hægt er að sækja um styrk frá stéttarfélögum til að sækja námskeið á háskólastigi – 

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.