Grisjunarnámskeið

– Í samstarfi við Skógræktarfélagið Fossá í Hvalfirði –

Á þessu hnitmiðaða og verklega grisjunarnámskeiði er farið ítarlega yfir örugga og rétta meðferð keðjusaga, grisjun og fellingu trjáa. Námskeiðið veitir þátttakendum traustan grunn í fellingartækni, líkamsbeitingu og skipulag vinnu í skógi og görðum. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur aukið öryggi, betri tækni og aukna færni við sjálfstæða vinnu með keðjusög.

FJALLAÐ ER MEÐAL ANNARS UM:

  • Meðferð og umhirðu keðjusagar

  • Einfalda bilanaleit, sundurtöku, þrif og brýningu keðju

  • Fellingartækni og rétta líkamsbeitingu

  • Fellingu trjáa í skógi og görðum

  • Val á trjám til fellingar í skógum og lundum

  • Tvítoppaklippingu og uppkvistun

  • Öryggisatriði við trjáfellingar

  • Leyfisveitingar vegna fellinga í þéttbýli

  • Uppröðun og meðhöndlun timburs eftir fellingu

FYRIR HVER:
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komin í meðferð keðjusaga og vilja efla færni sína í grisjun og trjáfellingum. Gott er fyrir þátttakendur að eiga eða hafa aðgang að keðjusög og viðeigandi hlífðarfatnaði, svo sem keðjusagarbuxum, keðjusagarstígvelum, hjálmi og hlífðargleraugum enda gott að sækja námskeiðið með eigin tæki og læra þannig sem mest um og með sín tæki meðferðis.

Nokkrar verslanir selja tæki og öryggisbúnað af þessu tagi og má þar nefna MHG verslun en þátttakendur á námskeiðinu fá 20% afslátt af því sem nauðsynlegt er til að taka þátt í þessu námskeiði (upplýsingar um afslátt fást þegar gengið er frá skráningu og greiðslu fyrir námskeiðið). Ennfremur er hægt að fá búnað lánaðan á meðan námskeiðinu stendur en upplýsingar um slíkt þurfa að berast í tölvupósti á steinar@lbhi.is síðasta lagi þriðjudaginn 7. apríl.

KENNARAR:
Benjamín Davíðsson og Valdimar Reynisson en báðir hafa áralanga reynslu af grisjun og trjáfellingum.

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Dagana 10. – 12. apríl 2026 (fös.-sun.)

Gróf dagskrá:
Föstudagur: 10:00 – 15:00 Bóklegt, 15:00-16:00. Sögin og brýning (Sýnikennsla á verkstæði)
Laugardagur: 10:00 – 16:00 Fossá – Hvalfirði Felling, þrif og brýning
Sunnudagur:  10:00 – 16:00 Fossá – Hvalfirði Felling, þrif og brýning

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Um er að ræða þriggja daga námskeið sem skipt eru upp í bóklegt nám sem fram fer í Bútæknishúsi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri (föstudagur 10. apríl) og verklegt sem fer fram á skógræktarsvæði Skógræktarfélagsins að Fossá í Hvalfirði (laugardagur og sunnudagur, 11. og 12. apríl). Upplýsingar um nákvæmar staðsetningar verða sendar þátttakendum nokkrum dögum áður en námskeið hefst. 

VERÐ
95.000 kr.– innifalið í verði er kennsla og léttar kaffi- og hádegisveitingar alla daga námskeiðsdagana. 

Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiði: 16

Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.

– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið – 

Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör

Endurmenntun LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590

Hvanneyri – 311 Borgarbyggð

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590