Réttindanám í meðferð varnarefna

Umsókn

– Opið fyrir umsóknir til 29. ágúst –

Haldið af Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitið.
Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum samkvæmt reglugerð.

Námið er kennt í fjarkennslu og hefst formlega þriðjudaginn 3. september 2024 og lýkur með rafrænu prófi þriðjudaginn 17. september. Upptökur af öllum fyrirlestrum, glærur og annað lesefni er aðgengilegt á kennsluvef Landbúnaðarháskólans frá og með 3. sep. og geta nemendur nálgast námsefnið allan sólarhringinn fram að prófdegi.

Námið skiptist í þrjá hluta og þurfa allir að taka námshluta I sem fjallar um markaðssetningu plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Þau sem vilja ná sér í full réttindi og vera í fullu námi taka alla þrjá hluta námskeiðsins.  Þau sem vilja mennta sig í meðferð útrýmingarefna vegna notkunar við eyðingu meindýra taka hluta 1 og 2 og þau sem vilja mennta sig í meðferð plöntuverndarvara í landbúnaði og garðyrkju, þar með talið garðaúðun, taka hluta 1 og 3.

Námshluti 1: Markaðsetning útrýmingarefna og plöntuverndavara
Í fyrsta hluta námskeiðsins er fjallað um helstu plöntuverndarvörur og útrýmingarefni og hvernig hægt er að lágmarka áhættu við meðferð þeirra. Einnig er fjallað um um helstu skaðvalda á Íslandi, notendaleyfi og meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna, vinnuvernd, varnarbúnað, áhættumat fyrir vinnustaði og margt fleira.

Námshluti 2: Útrýmingarefni við eyðingu meindýra
 Fjallað er um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra. Farið er yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfssemi meindýraeyða. Þá er fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiskonar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu. Kynnt er virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna.
Þeir sem eru í fullu námi og námi í meindýravörnum taka þennan námshluta.

Námshluti 3: Plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,
Farið er yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni og hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt er almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt. Lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum eru kynnt. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.
Þau sem eru í fullu námi og námi í meðferð plöntuverndarvara taka þennan námshluta.

Fjöldi sérfræðinga kemur að fræðslunni á námskeiðinu.

Skráning og nánari upplýsingar eru hér fyrir ofan.

– Við minnum á að hægt er að sækja um styrk frá stéttarfélögum til að sækja námskeið eða nám – 

Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og skilmála

Fullt nám - Nám til notkunar plöntuverndarvara og útrýmingarefna

Námið er ætlað þeim sem bæði vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju, þar með talin garðaúðun, sem og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.

Fullt nám í meðferð varnarefna er metið til 5  framhaldsskólaeininga (fein). 

Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt.

Fjallað verður um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra. Farið verður yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfssemi meindýraeyða. Þá verður fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiskonar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu. Kynnt verður virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna.

Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.

Námsmat: Námsmatið fer fram rafrænt þriðjudaginn 17. september og er prófin aðgengileg á kennsluvef skólans. Prófin eru aðgengileg frá kl. 9 til miðnættis. Um leið og prófið er opnað hefur nemandi samtals 90 mínútur til að svara öllum prófhlutum.

Prófhlutar eru þrír og hver prófhluti er með 20 fjölvalsspurningum (krossaspurningum). Gefnar eru 30 mínútur til að svara hverjum prófhluta, samtals 90 mínútur fyrir þá sem eru í fullu námi, og 60 mínútur fyrir þau sem eru í sértæku námi.

Um leið og þú opnar fyrsta prófið færðu 30 mínútur til að svara þeim prófhluta, og svo koll af kolli. Þú velur hvenær þú tekur prófin á þriðjudeginum 17. september, og hefur þannig fulla stjórn á því hvaða tíma dagsins hentar þér að taka prófin.

Vinsamlega athugaðu að próftími gefur lítið eða ekkert svigrúm til að leita svara í fyrirliggjandi námsefni og mikilvægt að mæta vel undirbúinn til prófs. Nokkuð er um það að nemendur þurfi að taka endurtektarpróf, og sýnir reynslan okkur að það er fyrst og fremst vegna lítils undirbúnings nemenda.

Námskröfur: Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Mikilvægt er að hafa í huga að vera vel undirbúinn fyrir prófið þar sem námsefnið er yfirgripsmikið og ríkar kröfur gerðar til nemenda. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir meðferð varnarefna í landbúnaði og garðyrkju og meðferð útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra. Sækja þarf um réttindi til Umhverfisstofnunar að námi loknu, sjá nánar hér

Kennarar: Fjölmargir sérfræðingar kenna á námskeiðinu og eru þeir allir sérfræðingar á sínu sviði. Sjá nánar í stundaskrá sem send er á nemendur þegar námið hefst.

Kennsla: Námið er  í fjarkennslu og verða upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar á kennsluvef skólans fram yfir prófdag. Námið telst vera 38 kennslustundir samtals og verður dagskrá námsins raðað niður á daga á kennsluvefnum.

Kennsluvefur: Kennsluvefur skólans heitir Ugla. Kennsluskrifstofa Landbúnaðarháskóla Íslands veitir nemendum aðgang að kennsluvef skólans og er aðgangurinn opinn fram á prófdag. Við hvetjum nemendur til að kynna sér kennsluvefinn strax og hvernig námið er skipulagt, tímaröð fyrirlestra, lesefni og hagnýtar upplýsingar sem þar er að finna. Borið hefur á því að nemendur ætla sér að fara inn á kennsluvefinn rétt fyrir próf og hafa lent í vandræðum með innskráningu og hefur opnunartími kennsluskrifstofu áhrif á hversu fljótt nemendur komast inn á kennsluvefinn. Netfang kennsluskrifstofu er: kennsluskrifstofa@lbhi.is.

Einnig er hægt að hringja í síma 433 5000 og óska eftir sambandi við kennsluskrifstofu. Opnunartími kennsluskrifstofu er:
– Mánudaga til miðvikudaga: 8.00 – 16.00
– Fimmtudaga og föstudaga: 8.00 – 13.00

Skrifstofa Endurmenntunar LBHÍ: Hægt er að hafa samband við Áshildi Bragadóttur endurmenntunarstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið ashildur@lbhi.is. Ef erindið er brýnt og þolir ekki bið er hægt að hringja í Áshildi í síma 782 1202.

Verð: 169.000 kr.

Hagnýtar upplýsingarVið vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Nám í meðferð útrýmingarefna við eyðingu meindýra

Námið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum vegna notkunar við eyðingu meindýra.

Nám í meðferð útrýmingarefna í meindýravörnum er metið til 2 framhaldsskólaeininga (fein). 

Fjallað verður um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra. Farið verður yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfssemi meindýraeyða. Þá verður fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiskonar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu. Kynnt verður virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna.

Námsmat: Námsmatið fer fram rafrænt þriðjudaginn 17. september og er prófin aðgengileg á kennsluvef skólans. Prófin eru aðgengileg frá kl. 9 til miðnættis.

Prófhlutar erutveir og hvor prófhluti er með 20 fjölvalsspurningum (krossaspurningum). Gefnar eru 30 mínútur til að svara hvorum prófhluta, eða samtals 60 mínútur.

Um leið og þú opnar fyrsta prófið færðu 30 mínútur til að svara þeim prófhluta. Þegar þú hefur lokið öðrum prófhlutanum getur þú opnað næsta prófhluta og færð einnig 30 mínútur til að ljúka honum. Þú velur hvenær þú tekur prófin á þriðjudeginum 17. september, og hefur þannig fulla stjórn á því hvaða tíma dagsins hentar þér að taka prófin.

Vinsamlega athugaðu að próftími gefur lítið eða ekkert svigrúm til að leita svara í fyrirliggjandi námsefni og mikilvægt að mæta vel undirbúinn til prófs. Nokkuð er um það að nemendur þurfi að taka endurtektarpróf, og sýnir reynslan okkur að það er fyrst og fremst vegna lítils undirbúnings nemenda.

Námskröfur: Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Mikilvægt er að hafa í huga að vera vel undirbúinn fyrir prófið þar sem námsefnið er yfirgripsmikið og ríkar kröfur gerðar til nemenda. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir meðferð varnarefna í landbúnaði og garðyrkju og meðferð útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra. Sækja þarf um réttindi til Umhverfisstofnunar að námi loknu, sjá nánar hér

Kennarar: Fjölmargir sérfræðingar kenna á námskeiðinu og eru þeir allir sérfræðingar á sínu sviði. Sjá nánar í stundaskrá sem send er á nemendur rétt áður en námskeiðið hefst.

Kennsla: Námið er  í fjarkennslu og verða upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar á kennsluvef skólans fram yfir prófdag. Námið telst vera 26 kennslustundir samtals og verður dagskrá námsins raðað niður á daga á kennsluvefnum.

Kennsluvefur: Kennsluvefur skólans heitir Ugla. Kennsluskrifstofa Landbúnaðarháskóla Íslands veitir nemendum aðgang að kennsluvef skólans og er aðgangurinn opinn fram á prófdag. Við hvetjum nemendur til að kynna sér kennsluvefinn strax og hvernig námið er skipulagt, tímaröð fyrirlestra, lesefni og hagnýtar upplýsingar sem þar er að finna. Borið hefur á því að nemendur ætla sér að fara inn á kennsluvefinn rétt fyrir próf og hafa lent í vandræðum með innskráningu og hefur opnunartími kennsluskrifstofu áhrif á hversu fljótt nemendur komast inn á kennsluvefinn. Netfang kennsluskrifstofu er: kennsluskrifstofa@lbhi.is.

Einnig er hægt að hringja í síma 433 5000 og óska eftir sambandi við kennsluskrifstofu. Opnunartími kennsluskrifstofu er:
– Mánudaga til miðvikudaga: 8.00 – 16.00
– Fimmtudaga og föstudaga: 8.00 – 13.00

Skrifstofa Endurmenntunar LBHÍ: Hægt er að hafa samband við Áshildi Bragadóttur endurmenntunarstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið ashildur@lbhi.is. Ef erindið er brýnt og þolir ekki bið er hægt að hringja í Áshildi í síma 782 1202.

Verð: 110.000 kr.

Hagnýtar upplýsingarVið vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Nám í meðferð plöntuverndarvara

Námið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju, þar með talin garðaúðun.

Nám í meðferð plöntuverndarvara er metið til 3 framhaldsskólaeininga (fein). 

Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt.

Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.

Námsmat: Námsmatið fer fram rafrænt þriðjudaginn 17. september og er prófin aðgengileg á kennsluvef skólans. Prófin eru aðgengileg frá kl. 9 til miðnættis.

Prófhlutar eru tveir og hvor prófhluti er með 20 fjölvalsspurningum (krossaspurningum). Gefnar eru 30 mínútur til að svara hvorum prófhluta, samtals 60 mínútur.

Um leið og þú opnar fyrri prófhlutann  færðu 30 mínútur til að svara þeim prófhluta, og um leið og þú hefur lokið að svara því prófi getur þú opnað seinna prófið og færð einnig 30 mínútur til að svara því. Þú velur hvenær þú tekur prófin á þriðjudeginum 17. september, og hefur þannig fulla stjórn á því hvaða tíma dagsins hentar þér að taka prófin.

Vinsamlega athugaðu að próftími gefur lítið eða ekkert svigrúm til að leita svara í fyrirliggjandi námsefni og mikilvægt að mæta vel undirbúinn til prófs. Nokkuð er um það að nemendur þurfi að taka endurtektarpróf, og sýnir reynslan okkur að það er fyrst og fremst vegna lítils undirbúnings nemenda.

Námskröfur: Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Mikilvægt er að hafa í huga að vera vel undirbúinn fyrir prófið þar sem námsefnið er yfirgripsmikið og ríkar kröfur gerðar til nemenda. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir meðferð varnarefna í landbúnaði og garðyrkju og meðferð útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra. Sækja þarf um réttindi til Umhverfisstofnunar að námi loknu, sjá nánar hér

Kennarar: Fjölmargir sérfræðingar kenna á námskeiðinu og eru þeir allir sérfræðingar á sínu sviði. Sjá nánar í stundaskrá sem send er á nemendur.

Kennsla: Námið er  í fjarkennslu og verða upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar á kennsluvef skólans fram yfir prófdag. Námið telst vera 28 kennslustundir samtals og verður dagskrá námsins raðað niður á daga á kennsluvefnum.

Kennsluvefur: Kennsluvefur skólans heitir Ugla. Kennsluskrifstofa Landbúnaðarháskóla Íslands veitir nemendum aðgang að kennsluvef skólans og er aðgangurinn opinn fram á prófdag. Við hvetjum nemendur til að kynna sér kennsluvefinn strax og hvernig námið er skipulagt, tímaröð fyrirlestra, lesefni og hagnýtar upplýsingar sem þar er að finna. Borið hefur á því að nemendur ætla sér að fara inn á kennsluvefinn rétt fyrir próf og hafa lent í vandræðum með innskráningu og hefur opnunartími kennsluskrifstofu áhrif á hversu fljótt nemendur komast inn á kennsluvefinn. Netfang kennsluskrifstofu er: kennsluskrifstofa@lbhi.is.

Einnig er hægt að hringja í síma 433 5000 og óska eftir sambandi við kennsluskrifstofu. Opnunartími kennsluskrifstofu er:
– Mánudaga til miðvikudaga: 8.00 – 16.00
– Fimmtudaga og föstudaga: 8.00 – 13.00

Skrifstofa Endurmenntunar LBHÍ: Hægt er að hafa samband við Áshildi Bragadóttur endurmenntunarstjóra með því að senda tölvupóst á netfangið ashildur@lbhi.is. Ef erindið er brýnt og þolir ekki bið er hægt að hringja í Áshildi í síma 782 1202.

Verð: 110.000 kr.

Hagnýtar upplýsingarVið vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Endurmenntun LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

Hvanneyri – 311 Borgarbyggð

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590