Almennar upplýsingar um námið
Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur
Námskeiði er ætlað garðyrkjufræðingum, skrúðgarðyrkjufræðingum og þeim sem sinna garðaráðgjöf.
Farið yfir helstu grunnatriði varðandi næringarefni og áburð. Hlutverk áburðarefna í plöntum, hlutfall næringarefna og næringarskort. Sýrustig og kölkun jarðvegs. Helstu einkenni íslensk jarðvegs. Jarðvegsbætur og undirbúningur jarðvegs til ræktunar.
Lífræn áburður. Notkun, helstu tegundir lífræns áburðar, kosti og galla ásamt áburðarskömmtum.
Ólífrænn áburðir. Helstu tegundir tilbúins áburðar, hlutfall næringarefna í áburði og áburðarskammtar.
Kennari: Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur LbhÍ.
Tími: Mið. 24. mars, kl. 9:00-15:00 (7 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.
Verð: 30.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði).
Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590