Á þessu hnitmiðaða námskeiði er fjallað um mikilvægi staðargróðurs og aðferðir við endurheimt hans á svæðum sem raskast vegna framkvæmda. Farið er yfir tengsl staðargróðurs við líffræðilega fjölbreytni, sjálfbærni og alþjóðleg markmið – auk þess sem kynntar eru raunhæfar aðferðir við endurheimt staðargróðurs og reynsla af framkvæmd slíkra verkefna.
Námskeiðið veitir þátttakendum yfirsýn yfir helstu áskoranir sem fylgja raski á gróðri og jarðvegi og hvernig best er að undirbúa, skipuleggja og framkvæma endurheimt staðargróðurs. Sérstök áhersla er lögð á aðferðir sem byggja á nýtingu staðbundins efniviðar og náttúrulegra ferla og í lok námskeiðs er boðið upp á umræður um áskoranir og lausnir við framkvæmd endurheimtar.
FJALLAÐ ER MEÐAL ANNARS UM:
- Mikilvægi staðargróðurs og tengsl við líffræðilega fjölbreytni
- Rask vegna mismunandi mannvirkjagerðar
- Helstu aðferðir við endurheimt staðargróðurs
- Nýting gróðursvarðar, fræja og annars staðbundins efniviðar
- Reynslu af mismunandi aðferðum
- Undirbúning, skipulag og framkvæmd endurheimtarverkefna
- Umræður um áskoranir og lausnir í framkvæmd
FYRIR HVERJA:
Námskeiðið hentar öllum sem koma að hönnun, skipulagningu og framkvæmd verkefna sem raska gróðri og jarðvegi og nýtist m.a.:
- Starfsfólki sveitarfélaga
- Verktökum
- Skipulagsfræðingum og hönnuðum
- Aðilum í ferðaþjónustu
- Umhverfis- og náttúruverndaraðilum
- Áhugafólki um landgræðslu og vistheimt
KENNSLUFYRIRKOMULAG:
í boði sem staðnám Hjá Landbúnaðarháskóli Íslands á Keldnaholti í Reykjavík, Árleynir 22, eða sem fjarnám og verður teamshlekkur sendur á þátttakandur mánudaginn 26. apríl.
DAGSETNING:
Næsta námskeið fyrirhugað haust 2026
Umsókn er ekki staðfest nema gengið sé frá greiðslu í umsóknarferlinu með debet- eða kreditkorti.
– Við vekjum athygli á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið –
Mikilvægar upplýsingar um greiðsluskilmála og greiðslukjör
———————–
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590
