Skreytingar úr efnivið náttúrunnar

Almennar upplýsingar um námið

Á haustin eru litasamsetningar í náttúrunni ótrúlega litríkar og er þessi árstími því mjög heppilegur til að nýta náttúruna til skreytinga. 

Námskeiðið er opið öllum þeim sem vilja eflast í eigin listsköpun og gera skreytingar úr efni sem náttúran
hefur að bjóða hverju sinni.

Námskeiðið hentar skapandi fólki, listafólki, hönnunarfólki og handverksfólki sem langar að vinna með náttúruefni en er ekki beint að leita eftir því að kunna blómaskreytingar heldur að geta skapað og hannað skreytingar úr efnivið náttúrunnar.

Námskeiðið er að hluta kennt úti við það sem nemendur velja sér stað fyrir sína listsköpun og nota að mestu efnvið náttúrunnar og prófa sig áfram með ýmsar tækniaðferðir.

Þátttakendur fá sýnikennslu og verklega kennsla í að setja saman sínar eigin skreytingar undir handleiðslu fagmanna og taka í lokin afrakstur dagsins með sér heim.

Kennsla: Bryndís Eir Þorsteinsdóttir blómaskreytir og Valgerður Jóndís Guðjónsdóttir blómaskreytir

Tími: Lau., 18. september kl. 10:00-16:00 hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi

Verð: 34.000 kr. – Innifalið í verði er leiðsögn tveggja sérhæfðra blómaskreyta, allur efniskostnaður, hádegisverður og kaffiveitingar.

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

 - Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands -

Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.

Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
- Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
- Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 5 nemendur án hunds.

Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.

Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.  

Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Paddy Fanning kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.

Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.

Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!

Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi

Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði

Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Verð með hundi: 60.000 kr. - innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. - innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590