Frumkvöðlafræði

– 2 ECTS eininga námskeið á háskólastigi – 

Umsókn

 Tilgangur námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á eðli sprotafyrirtækja og starfsumhverfi þeirra fyrstu árin í rekstri. Farið verður yfir sögu frumkvöðlafræðinnar á 20. öld, hvað reki fyrirtæki til stöðugra breytinga og frumkvöðla til að stofna sprotafyrirtæki, hvernig fjórða iðnbyltingin hefur áhrif á þessar breytingar, hvað beri að varast við stofnun sprotafyrirtækja og hvaða greiningartól gagnist við slíka greiningarvinnu. Þá verður farið yfir uppsetningu á viðskiptamódeli, myndun teymis og fjármögnunarmöguleika sprotafyrirtækja, kosti þeirra og galla.

Við lok námskeiðs eiga nemendur að þekkja það ferli sem þarf að fara í gegnum ef hugmynd að sprotafyrirtæki kviknar og geta greint gæði hugmyndar að sprotafyrirtæki með helstu greiningartólum og þannig metið hvort raunveruleg þörf og markaðsglufa sé á markaði fyrir hugmyndina. Nemendur læra einnig að þekkja grunnatriði við uppsetningu á viðskiptamódeli, fjármögnunarþörf og heppilegustu útfærslu fjármögnunar, gera áhættumat og
setja upp útgönguáætlun (e. exit strategy).

Námskeiðið er kennt í fjarkennslu en farið er í hálfsdags vettvangsferð. Mætingaskylda er í vettvangsferðina þar sem öflug sprotafyrirtæki verða heimsótt. 

Nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LBHÍ sækja sama námskeið og nemendur sem skráðir eru í BS nám við Landbúnaðarháskóla Íslands. Námskeiðið er metið til 2 ECTS eininga.

Námsmat byggist að mestu leyti á hópverkefni sem nemendur vinna að í áfanganum um þeirra eigin sprotafyrirtæki. Það skiptist í lyfturæðu (2%), lokakynningu (24%) og viðskiptaáætlun (40%) fyrir fyrirtækið. Að auki vinna nemendur skýrslu úr efni gestafyrirlesara (5%), tilvikagreiningu (24%) og skýrslu úr námsferð (5%).

Kennari námskeiðsins er Helgi Eyleifur Þorvaldsson aðjúnkt og brautarstjóri í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Helgi er búfræðingur og með BSc í búvísindum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri en hefur auk þess lokið meistaragráðu í viðskiptastjórnun (MBA) með áherslu á frumkvöðlafræði og nýsköpun frá þýska háskólanum Hochschule für Wirtschaft und Recht (HWR) í Berlín.

Staður: Allir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir nemendum á námsvef skólans.
Skyldumæting er í vettvangsferð.

 Tími: 7 vikna námskeið frá 17. okt. – 3. des. Stundaskrá birt síðar.

Verð:  44.000 kr. 

Við minnum á að hægt er að sækja um styrk frá stéttarfélögum til að sækja námskeið eða nám –

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.