Áburðagjöf í garðyrkju

Almennar upplýsingar um námið

Námskeiði er ætlað garðyrkjufræðingum, skrúðgarðyrkjufræðingum og þeim sem sinna garðaráðgjöf.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu grunnatriði varðandi næringarefni og áburð í garðyrkju.

Fjallað er um hlutverk áburðarefna í plötum, hlutfall næringarefna og næringarskort.  Rætt verður um  sýrustig og kölkun jarðvegs og helstu einkenni íslensk jarðvegs. sem og jarðvegsbætur og undirbúning jarðvegs til ræktunar.

Á námskeiðinu er einnig fjallað um áburð, notkun, helstu tegundir lífræns áburðar, kosti og galla ásamt áburðarskömmtum.

Þátttakendur læra einnig um ólífrænan áburð, helstu tegundir tilbúins áburðar, hlutfall næringarefna í áburði og áburðarskammta.

Hámarks fjöldi þátttakenda: 20. 

Kennari: Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur hjá LbhÍ.

Tími: Mið. 24. mars kl. 9-15

Staður: Hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi

Verð: 29.000 kr. (Námsgögn, kaffi og hádegismatur er innifalið í verði námskeiðsins)

Hagnýtar upplýsingarFlest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.