Hlýðninámskeið með Meghan Oesch

– Fyrir alla sem hafa áhuga á læra meira um hlýðni hjá hundum

Umsókn

Hlýðni er ein allra besta gjöf sem þú getur gefið þér og þínum hundi. Hlýðni er þegar hundur lærir og hlýðir skipunum.  

Námskeiðið er ætlað öllum hundaeigendum sem hafa áhuga á að læra meira um hlýðni hjá hundum, bæði byrjendur og lengra komna. Hlýðni er fyrir hunda í öllum stærðum, gerðum og litum. 

Á námskeiðinu mun Meghan Oesch atvinnuhundaþjálfari frá Kanada leiðbeina hundaeigendum í því hvernig hægt er að bæta hlýðni hunda í daglegu lífi og færni til að hlýða skipunum.  

Í boði er bæði verkleg kennsla með hundi og 3 klukkustunda fyrirlestur. Þar fer Megan yfir helstu atriði í hlýðni og deilir reynslu sinni af þjálfun hunda og árangri af þjálfuninni. Verklegu tímarnir eru einstaklingsmiðaðir fyrir hvern hund.  

Kennari á námskeiðinu er Meghan Oesch viðurkenndur atvinnuhundaþjálfari frá Kanada og hún kemur til landsins í febrúar til þess að kenna á námskeiðinu og þjálfa íslenska hundaeigendur. Hún hefur starfað sem hundaþjálfari í rúmlega áratug. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og unnið til verðlauna. Hún tekur þátt í hlýðniprófum og sérhæfir sig í vandamálahundum sem og lögreglu- og varnarhundum (protection dogs). Meghan er dómari í Rallý hlýðni fyrir kanadíska Kennelklúbbinn og hefur náð stórkostlegum árangri í þjálfun verndarhunda/shutzhund (protection dogs) og „dock diving“.

Meghan aðlaðar þjálfunaraðferðir eftir þörfum hunds. Hún trúir að engin ein aðferð virkar á alla hunda því þeir eru allir mismunandi. Fyrsta áratug hennar sem þjálfari vann hún með gæludýrahundum að bæta hlýðni, keppa í hundasportum og hegðunarvandamálum en síðustu ár hefur hún fært sig yfir í að þjálfa lögregluhunda.  

Verklega námskeiðið hefst á 3 klukkustunda fyrirlestri.
Þar fær hver þátttakandi klukkustundar einkakennslu og fylgist síðan í framhaldinu með og lærir af öðrum þátttakendum og þjálfun þeirra hunda, samtals 4 klukkustundir.  

– Ath. aðeins 4 komast að á hvert verklegt námskeið  

Einnig er í boði að skrá sig eingöngu á fyrirlestur Meghan um hlýðni og taka þátt í bóklegu fræðslunni í gegnum Teams. Þátttakendur fá þá sendan Teams hlekk 1-2 dögum áður en námskeiðið hefst.   

Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. 

Kennari: Meghan Oesch atvinnuþjálfari frá Kanada

Staður verkleg kennsla: Reiðhöllin Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér.
Staður fyrirlestur: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík, Árleyni 22

Tími: Fyrirlesturinn er haldinn föstudaginn 23. febrúar kl. 17-20 í húsnæði LBHÍ á Keldnaholti Rvk.
Hægt er velja um mæta hjá Landbúnaðarháskóla Íslands eða taka þátt í fyrirlestrinum á Teams.
 

Hópur I:  Lau. 24. feb. kl. 9-13 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér. – Fullt
Hópur II:  Lau. 24. feb. kl. 14-18 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér. – Fullt
Hópur III:  Sun. 25. feb. kl. 9-13 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér. – 1 pláss laust
Hópur IV:  Sun. 25. feb. kl. 14-18 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér. – 2 pláss laus

Verð verklegs og bóklegs námskeiðs: 30.000 kr. – innifalið í verði er bókleg og verkleg kennsla og kaffi
Verð fyrirlesturs/fræðsluerindis á staðfundi eða á Teams: 5.000 kr.

Athygli er vakin á að flest stéttarfélag styðja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið 

Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og skilmála

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.