Almennar upplýsingar um námið
Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem sótt hafa námskeiðið Húsgagnagerð I hjá LbhÍ og hafa kynnt sér viðkomandi tálgutækni, „þurrt í blautt“ samsetningar á kolli, bekk og tréhamri og notað yddara, borvélar, afberkingaráhöld, axir, klippur og sagir við húsgagnagerðina og í skógarvinnu.
Helstu efnisþættir námskeiðsins:
Þáttakendur munu hanna og vinna frummyndir úr greinaefni
Rifjað verður upp verklag og notkun áhalda frá fyrra námskeiði og byggt ofan á þá reynslu
Læra þátttakendur að sækja sér efni í skóg til að útbúa greinahaldara, dýr og húsgögn
Fjallað um umhirðu og viðargæði trjágróðurs
Fallað eiginleika og galla einstakra íslenskra viðartegunda
Fjallað um yfirborðsmeðhöndlun, viðarvörn inni og útihúsgagna
Fræðsluefni skoðað sérstaklega hjá netmiðlum og víðar.
Öll verkfæri og efni eru til staðar. Þátttakendur þurfa að vera í vinnufatnaði á námskeiðinu og taka með fatnað til útiveru. Allir fara heim með afrakstur námskeiðsins.
Kennsla: Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi Skógræktarinnar og verkefnisstjóri Lesið í skóginn og Ólafur G. E. Sæmundsen skógtæknir.
Tími: Fös. X, kl. 16:00-19:00 og lau. Xl, kl. 09:00-16:00 hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.
Verð: (kaffi, hádegismatur og efni innifalin í verði)
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590