Jurtalækningar og heilnæmi jurta

Almennar upplýsingar um námið

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra að hlúa að sjálfum sér og sínum nánustu með lækningajurtum.
Á námskeiðinu verður kafað ofan í jurtafræðina og lækningamátt jurta. Fjallað verður um hvernig jurtir hafa verið notaðar í gegnum tíðina, hvaða jurtir henta vel til lækninga, hvernig á að bera sig að við jurtatínslu og verkun jurta og hvaða tæki gagnast vel.
Lækningajurtir hafa ávallt verið hluti af fjölskyldulífinu en í dag hefur mikið af þessari kunnáttu tapast.
Á námskeiðinu mun Ingeborg Andersen grasalæknir fara með þátttakendur í ferðalag og kenna þeim að endurheimta þessa grunnþekkingu og hvernig hægt er að vinna með jurtir heima við á öruggan og áhrifaríkan hátt.

Meðal þess sem farið verður yfir á námskeiðinu er:

– Tínsla og verkun ferskra jurta
– Einstaklingsmiðuð jurtanotkun
– Mismunandi aðferðir við jurtavinnslu og geymslu
– Börn og jurtir
– Svefn og jurtir
– Ónæmiskerfið og jurtir
– Jurtasmyrsl og jurtaolíur
– Snyrtivörur og jurtir
– Nærandi jurtir
– Jurtir og melting

Ingeborg er faglærð í vestrænum grasalækningum með BS gráðu frá University of Westminister í London. Hún sérhæfðir sig í jurtalækningum með áherslu á heilsu, matarræði, náttúruspeki og fleira.

Kennari: Ingeborg Andersen grasalæknir

Tími: Lau. 10. september kl. 10 – 15

Staður: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík

Verð: 29.000 kr. – innifalið í verði eru námskeiðsgögn, kennsla og kaffiveitingar
(athugið að ekki er boðið upp á hádegismat)

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

 - Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands -

Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.

Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
- Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
- Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 5 nemendur án hunds.

Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.

Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.  

Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Paddy Fanning kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.

Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.

Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!

Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi

Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði

Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Verð með hundi: 60.000 kr. - innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. - innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590