Hér á landi fellur gríðarlegt magn af lífrænum úrgang sem nýta má sem næringarefni. Á næsta ári verður til dæmis bannað að urða sérsafnaðan lífrænan heimilisúrgang (municipal waste) á Íslandi og því þarf að finna nýjan farveg fyrir þennan úrgang. Með virku samstarfi fyrirtækja og stofnana er möguleiki til að loka hringrás lífrænna (úrgangs)efna, auka nýtni næringarefna m.a. sem áburð í landbúnaði og spara almannafé.
Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriði og meginstefnur í meðhöndlun úrgangs erlendis og á Íslandi.
Farið er yfir grunnatriði í meðhöndlun úrgangs, þróun í meðhöndlun úrgangs, lög og reglugerðir, skilgreiningar og hugtök, mismunandi leiðir og útfærslur til meðhöndlunar úrgangs, umhverfis- og samfélagsáhrif sem og samlegðaráhrif aðgerða.
Lögð er áhersla á heildræna nálgun í meðhöndlun úrgangs og þá sérstaklega m.t.t. lífræns úrgangs og lagðar verða tengingar við aðila sem koma að málum. Fjallað verður um samvinnu í efnis- og vörukeðjum með því að markmiði að loka efnahringrás og koma þannig í veg fyrir að úrgangur myndist yfir höfuð.
Einnig verður farið inn í tengsl úrgangs- og orkumála, s.s. orkusparnaður sem getur orðið við hágæða endurvinnslu úrgangs í hringrásarhagkerfi sem og nýjar leiðir sem hafa verið að þróast við að meðhöndla lífrænan úrgang í hringrásarhagkerfi, bæði hérlendis og erlendis. Þessi nýja nálgun gæti haft í för með sér víðtæk áhrif í nánustu framtíð á vinnsluaðferðir í efnahagslífinu, og þá sérstaklega í landbúnaði. Dæmi sem má nefna í þessu samhengi eru gas- og jarðgerð, hauggerjun (Bokashi), ormaræktun, nýting verðmætra efna í lífrænum úrgangi (t.d. PHA og PLA fyrir bioplastframleiðslu, plöntutrefjum og bioceuticals (e. Biobased Economy),
svæld brennsla (orku- og lífkol framleiðsla og notkun (e. Pyrolysis)
Námskeiðið er samtals 14 kennslustundir og kennt í þrjár vikur frá 24. okt. – 7. nóv. (5 kennsludagar)
Þeir sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LBHÍ sækja sama námskeið og nemendur sem skráðir eru í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands og uppfylli þeir öll skilyrði til próftöku verður gefinn kostur á að fá vottað einingamat í lok námskeiðs. Námskeiðið er á BS stigi, má meta til 2 ECTS eininga.
Kennsla: Cornelis Aart Meijles umhverfisverkfræðingur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Tími: Kennsla á Teams frá 24. október til 7. nóv. (sjá stundaskrá hér fyrir neðan)
Staður: Kennsla fer fram í gegnum Teams. Hægt er að nálgast upptökur af fyrirlestrum á kennsluvef skólans
og eru þeir aðgengilegir meðan á námskeiði stendur.
Verð: 49.000 kr.
Umsókn
STUNDASKRÁ
Mán. 24. okt, frá 13.00 – 15.10
Mið. 26. okt. frá 13.00 – 15.10
Mán. 31. okt. frá 13.00 – 15.10
Fös. 4. nóv. 13.00 – 15.10
Mán. 7. nóv. kl. 16.00 – 18.10
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590