Plægingarnámskeið

Almennar upplýsingar um námið

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vinna við jarðrækt hverskonar og vilja bæta plægingartækni og læra að stilla saman plóg og dráttarvél.

Dráttarvél og plógur og stillt saman. Farið yfir allar helstu stillingar og atriði sem skipta máli í þessu sambandi. 

Kennsla er verkleg og lengd námskeiðs 3 klst. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 og lágmarksfjöldi 8.

Kennsla: Haukur Þórðarson leiðbeinandi við Landbúnaðarháskóla Íslands

Staður: Á Stóra-Ármóti á Suðurlandi

Tími: Miðvikudaginn 11. maí kl. 13 – 16

Verð: 22.000 kr. (Innifalið í verði er kennsla, aðstoð og leiðsögn við stillingar og kaffiveitingar)

Hagnýtar upplýsingarMinnt er á Starfsmenntasjóð bænda sem vistaður er hjá Bændasamtökum Íslands (www.bondi.is)

 

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.