Rallý hlýðni með Meghan Oesch

– Námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á rallý, byrjendur og lengra komna –

Umsókn

– Tvö pláss laus í Rallý hlýðni – Hópur II –

Rallý hlýðni er nýtt og uppkomandi hundasport úti í stóra heiminum. Rallý hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi síðastliðin ár og 2023 var það viðurkennt sem viðurkennd grein innan HRFÍ.

Hundar fara í gegnum braut með 10-20 mismumandi skiltum sem segja til hvað skal gera við hverja stöð. Hundurinn fer í gegnum hverja stöð fyrir sig undir handleiðslu leiðanda. Dæmi um stöðvar eru að setjast við hlið eiganda, hoppa yfir slá eða sikk sakka á milli keila.

Rallý hlýðni ýtir undir samvinnu hunds og leiðanda, Rallý hlýðni styrkir einnig samband á milli hunds og leiðanda 

Kennari á námskeiðinu er Meghan Oesch viðurkenndur atvinnuhundaþjálfari frá Kanada og hún kemur til landsins í febrúar til þess að kenna á námskeiðinu og þjálfa íslenska hundaeigendur. Hún hefur starfað sem hundaþjálfari í rúmlega áratug. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og unnið til verðlauna . Hún tekur þátt í hlýðniprófum og sérhæfir sig í vandamálahundum sem og lögreglu- og varnarhundum (protection dogs). Meghan er dómari í Rallý hlýðni fyrir kanadíska Kennelklúbbinn og hefur náð stórkostlegum árangri í þjálfun verndarhunda/shutzhund (protection dogs) og „dock diving“.

Meghan aðlaðar þjálfunaraðferðir eftir þörfum hunds. Hún trúir að engin ein aðferð virkar á alla hunda því þeir eru allir mismunandi. Fyrsta áratug hennar sem þjálfari vann hún með gæludýrahundum að bæta hlýðni, keppa í hundasportum og hegðunarvandamálum en síðustu ár hefur hún fært sig yfir í að þjálfa lögregluhunda. 

Hver þátttakandi fær klukkustundar einkakennslu og fylgist síðan í framhaldinu með og lærir af öðrum þátttakendum og þjálfun þeirra hunda, samtals 4 klukkustundir.  
– Ath. aðeins 4 komast að á hvert verklegt námskeið 

Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. 

Kennari: Meghan Oesch atvinnuþjálfari frá Kanada

Staður: HRFÍ, Melabraut 17 Hfj. 

Tími: Hópur I:  Sun. 18. feb. kl. 9-13 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér.
Hópur II:  Sun. 18. feb. kl. 14-18 í reiðhöll Hamraenda 14 í hesthúsahverfi Spretts, sjá nánar hér.

Verð námskeiðs: 25.000 kr. – innifalið í verði er verkleg og bókleg kennsla og kaffi 

Athygli er vakin á að flest stéttarfélag styðja félagsmenn sína til að sækja nám og námskeið 

Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag og skilmála

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.