Reiðmennska í huganum - hugarþjálfun fyrir hestamenn

Almennar upplýsingar um námið

Námskeiðið  er ætlað hestamönnum á öllum stigum hestamennskunnar, allt frá byrjendum til keppnisknapa. Nemendur fá innsýn í það hvernig hugaþjálfun hjálpar knapanum við að ná stjórn á sjálfum sér til þess að geta haft góð samskipti við hest sinn. Efnið er allt frá því að setja sér markmið í reiðmennsku og þjálfun, vinna á hræðslu eða stressi yfir í að ná því besta úr sjálfum sér í krefjandi aðstæðum, til dæmis í keppni.

Námskeiðið fer fram í fjarkennsluforritinu TEAMS, sem er einfalt og notendavænt kerfi. Þátttakendur námskeiðsins sjá kennarann og glærur auk annarra þátttakenda. Þátttakendur geta einnig spurt spurninga og tekið þátt í umræðum og spjalli undir stjórn kennarans.

Athugið að námskeiðið fer einungis fram í rauntíma.

Það eina sem þú þarft að gera er að hafa til taks tölvu, spjaldtölvu eða síma og hljóðnema. Flestar tölvur eru með vefmyndavél og viljum við biðja þig um að hafa kveikt á henni til að við sjáum hvert annað, þannig skapast skemmtilegri stemning og samræður verða líflegri.

Gott er að vera komin inn á fundinn 2-3 mín áður en námskeiðið byrjar til að við getum byrjað á réttum tíma.

Við mælum með því að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.

Við sendum hlekk námskeiðsins deginum áður en það hefst á það netfang sem þú gefur upp við skráningu. Þú færð einnig sendar góðar leiðbeiningar um þátttöku í gegnum TEAMS. Þú þarft síðan eingöngu að smella á hlekkinn til að fara inn á námskeiðið og því ekki nauðsynlegt að hlaða TEAMS forritinu niður.

Kennsla: Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Tími:

Verð:

Inngangur

  • Hver er ég
  • Hvernig hestamaður vilt þú vera? (Gildi)

Hugur og líkamstjáning

  • Samskipti við hestinn
  • Hugarfar stjórnar útkomu
  • Líkamstjáning og ábendingar

Stjórn á aðstæðum

  • Búa til „rétta stemningu“
  • Hugarástandsstjórn (trigger)

Hræðsla

  • Hvað er hræðsla?
  • Að vinna á hræðslu

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.

 - Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands -

Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.

Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
- Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
- Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 5 nemendur án hunds.

Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.

Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.  

Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Paddy Fanning kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.

Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.

Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!

Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi

Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði

Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds

Verð með hundi: 60.000 kr. - innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. - innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð

Keldnaholt - 112 Reykjavík

Sími 433-5000

Kt. 411204-3590