Sjalaprjón fyrir byrjendur

Almennar upplýsingar um námið

Eins dags byrjendanámskeið í sjalaprjóni þar sem nemendur komast vel af stað með að prjóna þríhyrnt sjal og ljúka því svo á eigin vegum. Farið er yfir helstu grundvallaratriði í sjalaprjóni ásamt því að læra að fara eftir uppskrift á ensku.  Kennari segir frá ýmsum gerðum af prjónuðum sjölum og verður með nokkrar gerðir af sjölum til að sýna.

Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnaðferðir í prjóni með því að prjóna sjal.  Fitja upp, slétt og brugðið, útaukningar, slá lykkju upp á prjóninn ofl. Einnig verður farið yfir nokkrar mismunandi gerðir affellinga, m.a. snúruaffellingu og nemendum gefst kostur á að gera prufur ef þeir vilja. Þetta er hugsað til að nemendur geti lokið við sjalið heima.

Nemendur koma með garn og prjóna og fá nánari upplýsingar varðandi það eftir að þeir eru búnir að skrá sig á námskeiðið.  Á námskeiðinu er farið stuttlega yfir mismunandi gerðir og grófleika af garni og hvaða áhrif mismunandi val á garni og prjónum hefur á sjalaprjón.

Prjónað er eftir uppskrift á ensku þannig að nemendur læra einnig að lesa og nota slíkar uppskriftir. Nemendur fá orðalista með þýðingum úr ensku yfir á íslensku með helstu hugtökum og aðferðum sér til halds og trausts.  Miðað er við að nemendur geti í framhaldinu nýtt sér þær fjölmörgu sjalauppskriftir (og aðrar) sem hægt er að nálgast á veraldarvefnum.

Boðið er upp á kaffi og meðlæti og er markmiðið að eiga notalega og lærdómsríka stund saman yfir prjónunum.

Í lok námskeiðs ætti nemandi að átta sig á því hvernig þríhyrnt sjal er byggt upp og kunna helstu grunnaðferðir í sjalaprjóni, ásamt því að vera kominn vel af stað með sjalið sitt og geta bjargað sér sjálfur með framhaldið.  Einnig ætti hann að kunna að fara eftir einfaldari uppskriftum á ensku.

Fátt er notalegra en að eiga hlýtt og gott sjal að sveipa um sig og sérstaklega ef maður hefur sjálfur lagt alúð við hverja lykkju

Hámarks fjöldi þátttakenda: 12

Leiðbeinandi: Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir grunnskólakennari.  Hún er mikil áhugamanneskja um handavinnu og hefur prjónað og saumað um árabil og m.a. kennt textílmennt í grunnskóla. @ragnarsdottir á instagram

Tími: Laugardagur 20. mars kl. 10-14

Heildarlengd námskeiðs: 4 klst.

Staður: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík

Verð: 17.500 kr. (Kennsla og kaffiveitingar innifalið í verði)

Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Umsókn

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.