Almennar upplýsingar um námið
Haldið af Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Umhverfisstofnun, Vinnueftirlitið og Landssamtök meindýraeyða. Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum samkvæmt reglugerð.
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta, þar sem hver um sig stendur sjálfstætt og sett upp fyrir eftirfarandi markhópa:
1. Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara eða útrýmingarefna
2. Þá sem hyggjast nota plöntuverndarefni í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun,
3. Þá sem hyggjast nota útrýmingarefna við eyðingu meindýra.
Allir þrír hlutarnir eru kenndir samhliða í nokkuð samfelldri lotu. Athugið að sá hluti sem ætlaður er þeim sem hyggjast gerast ábyrðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara eða útrýmingarefna er innifalinn í báðum hinum hlutunum.
Þeir sem uppfylla skilyrði til þess að geta sótt um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum til þess að nota í landbúnaði og garðyrkju eða notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum til eyðingar meindýra og vilja bæta við sig þeim hluta sem vantar upp á, þurfa ekki að taka sameiginlegan hluta námskeiðsins og verða ekki prófaðir aftur úr honum.
Bókleg kennsla fer fram hjá LbhÍ að Keldnaholti í Reykjavík, hægt verður að taka hluta námsins í fjarnámi, þ.e. fyrirlestrar verða teknir upp og lagðir út á námsvef skólans, þar sem nemendur munu geta hlustað á fyrirlestrana. Verkleg kennsla fer fram í og við skólahúsnæðið og því verður sá hluti ekki aðgengilegur á vefnum.
Námið er skipt niður í ákveðna hluta og hægt er að velja staka hluta eða alla
Meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna – Fyrir ábyrgðarmenn í markaðssetningu
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara og útrýmingarefna.
Fjallað verður um helstu plöntuverndarvörur og útrýmingarefna, notkun þeirra og varnir. Þá verður fjallað um vinnuvernd og viðbrögð við eitrunum bæði á menn og umhverfi. Komið verður inn á það hvernig hægt er að lágmarka áhættu við meðferð þeirra og fjallað um helsta varnarbúnað.
Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir námshlutann. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu varnarefna.
Kennsla: Björn Gunnlaugsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Guðborg Auður Guðjónsdóttir lyfjafræðingur og sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði við HÍ, Hafdís Inga Ingvarsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Helga Ösp Jónsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Sigurður Einarsson sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu og Svava Þórðardóttir lyfjasérfræðingur hjá HÍ.
Tími: Einn og hálfur dagur
Verð:
Meðferð plöntuverndarvara – Vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju (garðaúðun)
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju, þar með talin garðaúðun.
Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt.
Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.
Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörur vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju.
Kennsla: Bjarni Þór Hannesson golfvallatæknifræðingur, Björn Gunnlaugsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Bryndís Björk Reynisdóttir garðyrkjufræðingur, Guðborg Auður Guðjónsdóttir lyfjafræðingur og sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði við HÍ, Gunnþór Kristján Guðfinnsson garðyrkjufræðingur, Guðmundur Halldórsson rannsóknarstjóri hjá Landgræðslu ríkisins, Hafdís Inga Ingvarsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Halldór Sverrisson sérfræðingur hjá Skógræktinni, Helga Ösp Jónsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Ingibjörg Jónsdóttir fagsviðsstjóri hjá MAST, Karitas Róbertsdóttir Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar og Kópavogs, Sigurður Einarsson sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu og Svava Þórðardóttir lyfjasérfræðingur hjá HÍ.
Tími: Fjórir dagar
Verð:
Meðferð útrýmingarefna – Vegna notkunar við eyðingu meindýra (meindýraeyðar)
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum vegna notkunar við eyðingu meindýra.
Fjallað verður um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra. Farið verður yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfssemi meindýraeyða. Þá verður fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiskonar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu.
Kynnt verður virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna.
Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.
Kennsla: Bjarni Pálsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Björn Gunnlaugsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Guðborg Auður Guðjónsdóttir lyfjafræðingur og sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði við HÍ, Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur hjá Landgræðslu ríkisins, Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir, Gunnþór Kristján Guðfinnsson garðyrkjufræðingur, Hafdís Inga Ingvarsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Helga Ösp Jónsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Karitas Róbertsdóttir Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar og Kópavogs, Óskar Ísfeld Sigurðsson deildarstjóri matvælaeftirlits hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Sigurður Einarsson sérfræðingur hjá Vinnueftiriltinu, Svava Þórðardóttir lyfjasérfræðingur hjá HÍ og Þóra Jóhanna Jónasdóttir sérgreinadýralæknir hjá MAST
Tími: Fjórir dagar
Verð:
Meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna – Fyrir þá sem eru nú þegar með annan hlutann og óska eftir því að bæta hinum hlutanum við.
Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörur vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.
Tími: Tveir og hálfur dagur
Verð: 69.660 kr
Meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna – Bæði vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju og við eyðingu meindýra
Námskeiðið er ætlað þeim sem bæði vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju, þar með talin garðaúðun og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.
Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt.
Fjallað verður um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra. Farið verður yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfssemi meindýraeyða. Þá verður fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiskonar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu.
Kynnt verður virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna.
Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.
Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörur vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.
Kennsla: Bjarni Pálsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Bjarni Þór Hannesson golfvallatæknifræðingur, Björn Gunnlaugsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Bryndís Björk Reynisdóttir garðyrkjufræðingur, Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Guðborg Auður Guðjónsdóttir lyfjafræðingur og sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði við HÍ, Guðmundur Halldórsson rannsóknarstjóri hjá Landgræðslu ríkisins, Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir, Gunnþór Kristján Guðfinnsson garðyrkjufræðingur, Hafdís Inga Ingvarsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Halldór Sverrisson sérfræðingur hjá Skógræktinni, Helga Ösp Jónsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Ingibjörg Jónsdóttir fagsviðsstjóri hjá MAST, Karitas Róbertsdóttir Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar og Kópavogs, Óskar Ísfeld Sigurðsson deildarstjóri matvælaeftirlits hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Sigurður Einarsson sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, Svava Þórðardóttir lyfjasérfræðingur hjá HÍ og Þóra Jóhanna Jónasdóttir sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST)
Tími: Fimm dagar
Verð:
Næsta námskeið er áætlað vor 2022
Umsókn
Umsókn
Umsókn
Umsókn
Umsókn
Starfsmenntanám við LbhÍ
- Búfræði
- Blómaskreytingar
- Ylrækt
- Lífræn ræktun matjurta
- Garð- og skógarplöntur
- Skógur og náttúra
- Skrúðgarðyrkja
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590