Almennar upplýsingar um námið
Haldið í samstarfi við Vinnueftirlitið og viðkomandi Búnaðarsamband
Námskeiðið er ætlað bændum og þeim sem vinna við búskap en er einnig opið öðrum áhugasömum.
Tveggja daga bóklegt námskeið sem veitir réttindi til að taka verklegt vinnuvélapróf á dráttarvélar, liðléttinga og ýmsar minni gerðir vinnuvéla í réttindaflokki “I” og lyfturum í flokki “J”, þar með talið skotbómulyftara. Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum. Einnig verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað.
Ávinningur: Bókleg réttindi á vinnuvélar í réttindaflokkum “I” og “J”. Aukin þekking á vinnuverndarmálum og hvernig á að gera áhættumat starfa.
1. hluti, fyrri dagur. Vinnuvernd og áhættumatsgerð.
Hægt er að skrá sig eingöngu á 1. hlutann ef viðkomandi er með vinnuvélaréttindi en vill fara yfir vinnuverndarmál og gerð áhættumats með viðeigandi gátlistum.
Verðið er þá eingöngu 9.500 kr.
2. hluti fyrri dagur og 3. og 4. hluti seinni dagur.
Ýmsir fræðilegir þættir og öryggi, dráttarvélar með tækjabúnaði og ýmsar minni gerðir véla/jarðvinnuvéla í réttindaflokki “I” og lyftarar með allt að 10 tonna lyftigetu í réttindaflokki “J”.
Námskeiðinu líkur með skriflegu krossaprófi, sem lagt er fyrir að loknum 4. hluta.
Til að geta fengið vinnuvélaréttindi/skírteini þarf viðkomandi að:
- Sitja þetta tveggja daga námskeið og standast krossapróf í lokin.
- Hafa náð 17 ára aldri.
- Hafa gilt ökuskírteini.
- Fengið þjálfun í notkun vinnuvéla hjá kennara með vinnuvélakennararéttindi.
- Óska eftir og standast verklegt próf.
- Sækja um og fá útgefið vinnuvélaskírteini.
Þeir sem uppfylla ofangreind skilyrði geta óskað eftir því að taka verklegt próf að loknu námskeiði. Verklega prófið má þó taka síðar með aðkomu viðurkennds prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Þegar verklega prófið er tekið, er einnig sótt um vinnuvélaskírteini til Vinnueftirlitsins.
Kennsla: Eftirlitsmaður hjá Vinnueftirlitinu
Tími: Tveggja daga námskeið frá 10-17. Upplýsingar um næsta námskeið væntanlegar
Verð: Upplýsingar væntanlegar
Verklegt próf og skírteini: Verklegt próf og skírteini skv. gjaldskrá Vinnueftirlitsins ef tekið er próf fyrir bæði “l” og “J” flokk er verðið hærra sjá gjaldskrá Vinnueftirlitsins. Gjöld greiðast hjá Vinnueftirlitinu.
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590