Haldið í samstarfi við Samtök smáframleiðenda matvæla og Bændasamtök Íslands
Námsskeið fyrir bændur, matvælaframleiðendur, smásala og alla þá sem vilja fræðast um alþjóðlegar og innlendar vottnari og upprunamerkingar fyrir matvæli og þau tækifæri sem felast í betri merkingum matvæla.
Fjallað verður um Evrópsku matvælalöggjöfina og þau tækifæri sem felast í betri merkingum matvæla og helstu tillögur samráðshóps um betri merkingar matvæla um hvernig bæta megi aðgengi neytenda að upplýsingum um matvæli.
Einnig verður farið yfir skilgreiningar á helstu vottunarhugtökum, vottunarferlið kynnt og hvað beri að hafa í huga við val á vottun og staðli, sem og við val á innlendum og erlendum vottunaraðilum.
Þátttakendur fá einnig innsýn í hverjar helstu alþjóðlegu og innlendu vottanir og upprunamerkingar fyrir matvæli eru, hver helsti ávinningurinn af vottunum sé og áskoranir þeim tengdum. Þá verður fjallað um hvaða vottanir og upprunamerkingar íslensk fyrirtæki í útflutningi eru helst að nota og hver helsta áhersla þeirra er í markaðssetningu.
Oddný Anna Björnsdóttir er leiðbeinandi námskeiðsins. Oddný vann greiningu fyrir Íslandsstofu um vottanir og upprunamerkingar matvæla og var formaður samráðshóps um betri merkingar matvæla. Oddný er með víðtæka stjórnunarreynslu og hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði matvæla og landbúnaðar í hálfan áratug, rekur opna býlið Geislar Gautavík og er framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla, sjá nánar hér.
Gestafyrirlesarar eru Björn S. Gunnarsson vöruþróunarstjóri Mjólkursamsölunnar, Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Eygló Björk Ólafsdóttir eigandi Móður Jarðar í Vallanesi og
Gunnar Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
Tími: Þriðjudagurinn 12. október kl. 9.00-12.40 – á Teams
Fjarfundur á Teams: Þátttakendur fá sendan hlekk deginum áður, eða 11. október, og geta tengt sig beint inn á fundinn að morgni 12. október án þess að vera með Teams í tölvu sinni.
Verð: 24.000 kr.
Nánari dagskrá hér fyrir neðan
Umsókn
Dagskrá
9:00-09:50 Tækifærin sem felast í betri merkingum matvæla – Oddný Anna Björnsdóttir
10:00-10:50 Vottanir og upprunamerkingar matvæla – Oddný Anna Björnsdóttir
11:00-11:20 Merkingar matvæla frá sjónarhóli neytenda – Brynhildur Pétursdóttir
11:25-11:45 Vottun lífrænnar framleiðslu: Undirbúningur, framkvæmd og ávinningur – Gunnar Á. Gunnarsson
11:50-12:10 (Heiti erindis kemur síðar) – Björn S. Gunnarsson
12:15-12:35 Reynslusaga framleiðanda af lífrænni vottun – Eygló Björk Ólafsdóttir
12:35-12:40 Lokaorð – Oddný Anna Björndóttir
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
- Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands -
Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.
Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
- Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
- Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 5 nemendur án hunds.
Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.
Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Paddy Fanning kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.
Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.
Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!
Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi
Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði
Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Verð með hundi: 60.000 kr. - innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. - innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590
