Ræktunarmold og jarðvegsbætur

Á námskeiðinu er fjallað um eiginleika íslenskra jarðvegsgerða með tilliti til ræktunar, trjágróðurs og matjurta. Fjallað er um hvernig hægt er að bæta gæði moldarinnar og hvernig safnhaugagerð og endurnýting næringarefna kemur þar við sögu. Einnig er fjallað um garðmold og ýmsar moldarblöndur fyrir ræktun í pottum.

Hluti námskeiðsins er verkleg sýnikennsla þar sem þátttakendur skoða og þreifa á mismunandi jarðvegi og íblöndunarefnum. Kennt er hvernig búa má til sína eigin pottamold.

Kennari: Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ

Tími: Laugardagurinn 26. mars kl. 9.00 – 14.00

Staður: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.

Verð: 31.000 kr. (Námsgögn, kennsla, kaffi og hádegismatur innifalið í verði).

Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Umsókn

Umsagnir 

– Virkilega skemmtilegt og áhugavert námskeið – 

– Fróðlegt námskeið sem mun nýtast mér vel – 

Endurmenntun LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.