Almennar upplýsingar um námið
Örþörungarækt er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og eru örþörungar nýttir til framleiðslu á matvælum, lífefnavörum, lífeldsneyti, plast, fóður, áburð, lyf og jafnvel snyrtivörur. Örþörungar (microalgea) er fjölbreyttur hópur lífvera og tilheyra nokkrum hópum þar á meðal grænþörungum, dílþörungum, skoruþörungum, kísilþörungum og blágrænum þörungum.
Á námskeiðinu verður fjallað um ólíkar tegundir örþörunga sem notaðir eru í atvinnuskyni og afurðum sem þeim tengjast. Möguleikar á nýtingu örþörunga til hagsbóta fyrir umhverfið eru miklir og geta verið lykillinn að því að leysa einhverjar af þeim áskorunum sem við til að tryggja fæðuöryggi komandi kynslóða.
Í lok námskeiðsins munu þátttakendur hafa dýpri skilning á hvað örþörungar eru, hvernig á að rækta þá, hvernig örþörungar eru nýttir í líftækni, neysluvörum og hvaða tækifæri liggja í örþörungarækt til framtíðar, en Ísland hefur ákveðna sérstöðu í því tilliti með ódýra og umhverfisvæna orkugjafa.
Námskeiðið hentar vel öllum sem vilja kynna sér með hvaða hætti hægt er að nýta örþörunga til fóðurgerðar, í matvælaiðnaði og líftækni, sem og frumkvöðlum, fræðafólki og nemendum í líffræði, líftækni og lífvísindum.
Námskeiðið er kennt á ensku.
Kennari: Francisca Vermeulen, sérfræðingur í örþörungarækt, en hún starfar hjá SagaNatura sem þekkt er fyrir framleiðslu á andoxunarefninu Astaxanthin sem unnið er úr örþörungum.
Tími: Fimmtudagurinn 11. nóvember kl. 12:30 -16:00 á Teams
Þátttakendur fá sendan hlekk á fjarfundinn deginum áður. Gott er að tengja sig inn á fjarfundinn nokkrum mínutum áður en námskeiðið hefst.
Verð: 24.000 kr.
Umsókn
Endurmenntun LbhÍ
Landbúnaðarháskóli Íslands býr yfir sterkum og góðum tengslum við atvinnulífið og landsbyggðina sem er jafnframt grunnur að góðri og öflugri endurmenntunardeild við skólann. Endurmenntun LbhÍ þjónar því flestum starfandi einstaklingum á sviði umhverfistengdra málefna í þjóðfélaginu.
- Haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands -
Mikill áhugi hefur verið á fjárhundanámskeiðum sem Endurmenntun LBHÍ hefur haldið í samstarfi við Smalahundafélag Íslands og Bændasamtök Íslands, og hafa færri komist að en vilja.
Næsta námskeið verður haldið í reiðhöll LBHÍ á Mið-Fossum í Borgarfirði og eru tvö, tveggja daga námskeið í boði:
- Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
- Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 nemendur,
8 til 9 nemendur með hundi og 5 nemendur án hunds.
Í ljósi sögunnar og þróunar búsetu um hinar dreifðu sveitir landsins blasir við að fólki til sveita fækkar og smalamennska verður erfiðari af þeim sökum. Því hafa góðir smalar með vel þjálfaða hunda aldrei verið mikilvægari en einmitt nú. Námskeið þetta er því góð viðleitni við að undirbúa menn fyrir þessa breyttu tíma og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Kennari á námskeiðinu er Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi sem kemur frá Noregi. Hann er búinn að vera með smalahund frá árinu 1987 og er talinn einn af fjórum fremstu fjárhundatamningamönnum Noregs.
Jo Agnar hefur verið í norska landsliðinu frá 2006 og er formaður Hedmark Gjeterhundlag sem er deild innan norsku sauðfjár- og geitfjársamtaka Noregs.
Um er að ræða námskeið þar sem vönduð vinnubrögð og fagmennska eru í hávegum höfð. Á námskeiðinu mun Paddy Fanning kenna aðferðafræðina við að temja fjárhunda. Uppbygging námskeiðsins er 80% verkleg þjálfun sem fram fer í reiðhöllinni og úti við ef aðstæður leyfa. Þá er 20% bókleg kennsla eftir því sem þörf krefur.
Hundar verða að vera byrjaðir í tamningu með kindum og kunna að hlýða frumskipunum til að námskeiðið nýtist.
Í boði er að sitja námskeiðið án hunds gegn vægara gjaldi!
Kennari: Jo Agnar Hansen sauðfjárbóndi og fjárhundatemjari frá Noregi
Staður: Reiðhöllinni á Mið-Fossum í Borgarfirði
Tími: Fyrra námskeiðið er lau. 24. feb. og sun. 25. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Seinna námskeiðið er mán. 26. feb. og þri. 27. feb. kl. 9-17: Með eða án hunds
Verð með hundi: 60.000 kr. - innifalið í verði er kennsla, hádegisverður og kaffi
Verð án hunds: 30.000 kr. - innifalið í verði er að horfa á kennsluna, hádegisverður og kaffi
Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Keldnaholt - 112 Reykjavík
Sími 433-5000
Kt. 411204-3590
